Friday, October 25, 2013

Það er komið að því

Hæ.

Mig langar aðeins að fjalla um nokkra hluti.

Byrjum á snilldar kennaranum frá (giska ég) Indlandi. Þetta er kennarinn í Wireless Sensor Networks, Raghuraman Mudumbai. Fyrir utan það að vita mjög vel hvað hann er að tala um, þá gerir hann það á skemmtilegan hátt. Hreimurinn skemmir ekki fyrir. Hvað á ég við? Svo skemmtilega vill til að hann tekur upp fyrirlestrana sína, og sendi ég hér hlekk á einn svo þið getið heyrt röddina.

Þá er komið að Cheetos Puffs. Já, Cheetos puffs. Þetta eru bestu puffs sem ég hef smakkað, klárlega betri og festast meira í tönnunum en skandínavíska snakkið Ostepuffs frá held ég Maarud (leiðrétting: Kim's Ostepops, það er reyndar líka til Maarud Ostepop, en það er ekki það sem ég átti við enda hef ég aldrei smakkað það, en dem það lítur vel út).


Varúð: Cheetos Crunchy er illi tvífari Puffs og bragðast ekkert sérstaklega vel. Cheetos Crunchy Flamming Hot er hins vegar góði þrífari Puffs og er osom.


Ferðaplön. Planið er að nýta tækifærið á meðan maður er hér og ferðast eitthvað aðeins. Hér í Bandaríkjunum er svokallað "Thanksgiving break" sem er um vika í lok nóvember. Pælingin er að fara með nokkrum öðrum líkast til til Orlando, Florida. Af hverju þangað? Jú, þar er hlýtt ! (mmm) og þar er Disneyworld ásamt mörgum öðrum skemmtigörðum.

Aðrir mögulegir staðir eru Colorado og/eða road trip. Mér finnst það persónulega hljóma meira spennandi, en bæði hljómar vel.

Hlutir hér. Hlutirnir hér ganga bara almennt vel fyrir sig. Fólkið er vingjarnlegt, "Iowa nice" stendur undir orðsporinu. Námið gengur bara ágætlega, margir áfanganna eru skemmtilegir (alltaf gaman að rekast á Lenu aftur í Digital Image Processing). Ég hafði aldrei heyrt áður að ástæðan fyrir því að hægt er að algerlega setja LTI kerfi fram sem impúlssvörun er vegna þess að impúls er óendanlega mjór í tíma og þarafleiðandi óendanlega breiður í tíðni, sem þýðir að þegar maður setur púlsinn í gegnum LTI kerfi er maður í raun að prófa allar tíðnir! zomg. Síðan er ég búinn að sjá fullt af íkornum. Keypti mér ekki of dýran gítar sem mér fannst líta badass út, skemmir ekki fyrir að hann er frá Yamaha.

Til hvers að kunna á gítar þegar maður getur litið vel út?

Fór að sjá leikrit. Kallað Water By the Spoonful. Leikið af "theatre majors", eða fólki sem hefur leiklist sem aðalfag. Það var bara nokkuð gott, skemmtilegt.

Water By The Spoonfj

Leikmyndin


Frekar svít andrúmsloft, svona hálf-reykmettað. Svona andrúmsloft sem ég sæi fyrir mér þegar einhver færi með einræðu (e. monologue).

Prófaði skydiving. Félagi minn sagði að hann ætlaði í skydiving og spurði hvort ég vildi koma með? Ég sagði, já af hverju ekki? Nokkrum dögum og dollurum síðar prófuðum við svokallað Tandem Skydiving. Þar er maður fastur við fagmann sem fer með manni í lítilli rellu

lítil rella
flýgur upp í um 10,000 ft (metrar? METRAR?) og síðan stekkur hann út og maður bara whoosh fylgir á eftir. Án efa æðisleg reynsla, free-fallið sjálft var ólýsanlega osom. Það var ekkert hræðilegt, eins og tandem instructorinn sagði, eftir að hafa farið upp í 10000 ft, upplifað hræðsluna þegar hurðin á flugvélinni er opnuð og undrunina þegar hann kippir manni með sér með því að láta sig detta afturábak, þá er það sem kemur á eftir bara easy. Lölluðum síðan niður í um 4 mínútur með frábært útsýni yfir ja, akra. Gúdd sjitt.

Spurning um að hafa hárið mitt alltaf svona osom?





flugskýlið aka "the hangar"

Þetta var frekar kósí place. Gæinn sem á þetta er líka með lítið hótel þarna og var með syni sínum að höggva tré með keðjusög. Þar áður voru þeir á skytteríi.

Haustið er sko komið. Það er farið að kólna talsvert, og hitastigið hér er það sem ég myndi telja mjög týpískt vetrarhitastig á Íslandi. Talandi um það, ég hef verið spurður svo mikið út í veðrið á Íslandi og allir spyrja um hitastig... ég hef ekki hugmynd um það. Hef aldrei pælt í því! Planið var að kíkja í einn almenningsgarð hér og skoða trén, hef enn ekki gefið mér tíma til þess. Fer kannski að verða of seint?



Loksins náði ég mynd af einum. School Bus. Halló bíómyndir.

Fullt af laufum sem eru því miður úr fókus. Ég var í strætó. 


Ameríkanar eru mikið fyrir úrval . Ég hef ákveðið að nýta mér það. Þess vegna hef ég nú smakkað fruit loops, cherry coke, vanilla coke, extra tyggjó með súkkulaði og mintu ísbragði og fleira. Eitt sem er fáránlegt samt, er að þeir banna Kinder egg. Sem eru leyfð í allri Evrópu...

Svipað og Dr. Pepper / Cherry Coke

Ekki slæmt!

Held það sé komið. asjfdhkj





held það sé íkorni þarna einhvers staðar...

Ég hef tekið eftir ýmsum húmor á veitingastöðunum hér. Verð að segja að ég kann að meta þetta, man ekki eftir svona á Íslandi, en það er örugglega á mörgum stöðum. Þetta er á bátastað. Síðan á stað sem selur Burritos stendur:
Good Beer: $3
Bad Beer: $3

Hilarity.


- Matthías, Iowa City, 10/26/2013

Thursday, October 10, 2013

Myndadump #4




Það sést reyndar ekki nema vel sé að gáð (og allsgáð), en það eru þrír litlir fuglar sem slaka á á grindverkinu.

Bragðast eins og munnskol. Mjög gott!

Það var svokölluð "homecoming parade". Eða heimkomuskrúðgangan. Ekkert mjög ósvipað skrúðgöngum hér, lúðrasveit og alles.


og maður í tannburstabúning...
 
Þarna var ég mjög ánægður með að sjá asna í fyrsta sinn! Síðan kemst ég að því að asnar eru mun stærri og þetta eru líklega einhvers konar smáhestar. Ég hefði bara þurft spegil.




Americuhhhh 




Það verður sko ekki látið nægja minna en tvær myndir af McDonalds bílnum.


Jebb, íkornahnetur! Ætti kannski að heita "íkorn".


Ekki mikið um þetta á Íslandi... lestin fer reyndar örsjaldan í gegnum bæinn, og þegar hún gerir það keyrir hún mjög hægt. Ég hef aldrei séð hana.


Fyrsta verklega tilraunin í áfanganum Wireless Sensor Networks. Ekkert rosa spennó... samt fínt. Stilla útvarp sem sendir í sífellu sama merkið og nema styrk merkisins við mismunandi fjarlægðir/hæðir og reyna að sjá hvernig það passar við módelið sem miðar við eina line-of-sight bylgju og aðra ground reflection bylgju.
Alltaf gaman að nota spectrum analyser samt... þarna sýnir hann dBm (loksins lærir maður eitthvað almennilega á þessi fjandans desíbel sem hafa vafist fyrir manni síðan maður sá þau fyrst.) sem þýðir decibel yfir milliwatt. Þ.e. hversu mikið meira er þetta heldur en 1 mW. Á þessari mynd sjást truflanirnar vegna "noise" vel, á næstu mynd sést hvaða áhrif "averaging" hefur.

Að taka meðaltalið yfir (hér 70) mælingar minnkar áhrif "noise" (því að meðaltali er "noise" 0, það er kannski á bilinu +-1 t.d. og alveg handahófskennt). Eins og er augljóst fyrir mörgum.


Þarna sést fallegt útsýni yfir Iowa ána ásamt stöfunum Iowa City upplýstum á fallegum steinvegg. Nei bíddu... myndavélin mín ræður ekki við þetta lítið ljós.

Ok... bannað að reykja í strætó, ok bannað að borða í strætó og ok bannað að... WTF hvað í ósköpunum táknar þetta lengst til hægri? Bannað að vera með útvarp? bannað að vera með sína eigin loftkælingu? Svör óskast.

Alltaf töff að hafa ár (ég hef 22).

Dominos hér líka. JEOH (not really). Þarf að tékka hvort það bragðist öðruvísi, ég ætla að skjóta á já.

Ef mjög mjög mjög vel er að gáð sést mjög fallegur lítill fugl með vínrautt stél. Nema að þetta sé bara mold... en hann var þarna einhvers staðar þegar ég tók myndina.



Tilvalið að enda þetta á tveimur brunahanamyndum. Ég ætlaði að gera rosa flotta seríu því mér fannst þeir vera í svo mörgum litum. Kemur í ljós að þeir eru bara annað hvort rauðir eða gulir...



- Matthías, Iowa City, 10/10/2013