Tuesday, February 25, 2014

Show must go on

Halló.

Í fréttum er ekki margt... skólinn heldur áfram, lífið festist í hálfgerðri rútínu, það sem var nýtt og spennandi verður venjulegt.

Er ekki kominn tími á smá myndir?



Ekki amalegt að fá sent tímarit í boði IEEE... sérstaklega þar sem þetta er tímarit sem þeir senda ekki frítt til Íslands.

Einhver þau allra stærstu jarðarber sem að ég hef séð.

Það er bara svona... en að öllu gamni slepptu er þetta líklega eitthvað sem hefur dottið þegar einhver var að fara með hreinan þvott til baka í herbergið sitt.

EKKI eins og íslenskt fanta, þetta fanta er mun líkara appelsíni og gott á bragðið.

Í boði "Íslendingsins" sem ég ræddi um í síðustu færslu. Ég fékk mér kannski aðeins of mikið í tilefni þjóðernis áfengisins.

Það er handklæði, það er...

já, hér er sól... skítkalt, en sól. Fólk með sólgleraugu um vetur. WHAT



omnomnom!!! 

það á ekki að hleypa manni út...

einmitt...

- Matthías, Iowa City, Iowa, 02/25/2014

Monday, February 3, 2014

Klárlega fréttir

Hæ.

Það næsta sem ég hef komist því að hitta Íslending hér í landi hinna frjálsu gerðist í dag.

Gegnum vinkonu mína hérna, hitti ég mann sem fæddist á Íslandi, á bandaríska foreldra (voru á Íslandi út af hernum) og flutti mjög fljótlega aftur til Bandaríkjanna. Hann var síðast á Íslandi síðustu önn í nákvæmlega sama prógrammi og ég er í hér. Semsagt skiptinemi frá Iowa sem fór til Reykjavíkur í Háskóla Íslands.

Mjög gaman að geta talað íslensku augliti til auglitis, þó að auðvitað sé íslenskan hans ekki reiprennandi, en mér þykir mikið til koma hversu mikið hann kann, sérstaklega miðað við að hann virðist hafa lært það allt nánast sjálfur (foreldrar hans tala ekki íslensku).

Haha, líka gaman að heyra að hann hafi verið fullur á Harlem og Dollý.

Kveðja,
Einn ánægður Íslendingur í Bandaríkjunum