Saturday, March 29, 2014

Er 29 prímtala?

Já.

En allavega, ýmislegt búið að gerast, sumt sem á ekki heima á vefnum. Skólinn gengur bara ágætlega og andlega líðan mín hefur farið svona upp og niður. Loksins eru komnir fleiri íkornar! og ég get ekki beðið eftir því að heyra í kribbunum í þögninni. Sakna Íslands.

ef grannt er skoðað sést íkorni á syllunni

það er eitthvað æðislegt við það að sjá tunglið að degi til svona oft eins og hér

Var að gera verklegt með einum skólafélaga mínum þegar ég mundi hvað það er gaman að fikta með viðnám, þétta og IC-rásir. Fyrir forvitna, var verkefnið að þessu sinni að gera IR sendi sem tekur við merki frá iPhone. Frekar kúl. Virkaði reyndar ekki alveg, en samt nógu vel til að fá labbið checked off, sjáum hvort finnist einhver lausn á þessu. Út úr VCO-inum kom kassabylgja eins og vera ber (allavega nokkuð nálægt), en 555 timerinn (tekur við kassabylgju sem trigger) virtist gefa út 50% duty cycle bylgju í staðinn fyrir 10% eins og hann átti að gera. Sem er undarlegt, því þegar við notuðum tíðnigjafann til að gefa 555 timernum kassabylgju, þá virkaði hann eins og hann átti að gera!

Síðan í næsta labbi eigum við að gera power supply, og eigum að nota PCB borð (printed circuit board). Eftir að hafa komist í snertingu við Kristján Purkhús og alla hans snilld er erfitt að finnast maður ekki vera advanced miðað við þá sem hafa aldrei átt við slíkt. Hér er ætlast til að maður búi til layoutið í Multisim eða einhverju PCB forriti og láti síðan Electronic Shop fá það (búð sem selur rafeindadót, þétta, brauðbretti og allt sem maður þarf, er staðsett í skólanum!) og borgar eitthvað fé og þeir láta mann fá borðið með koparlínunum.

rásin er ekki tilbúin þarna... en btw, kostaði þetta brauðbretti aðeins $7

eitthvað svona ætti að koma út... (PCB)

Að lokum koma nokkrar myndir og auðvitað myndband af kóksjálfsala. Þetta er bara æði.


CURLY FRIES

vöffluformið bragðaðist eins og drasl miðað við vöffluformin heima, ísinn var góður, jarðarber og piparmynta

Já. Þetta gerðist. Aldrei hef ég séð þetta gerast í pool nokkurn tímann. Ef bláa kúlan yrði fjarlægð, færi sú appelsínugula ofan í og öfugt.




- Matthías, Iowa City, Iowa, 03/29/2014

Monday, March 17, 2014