3.2857142857... vikur síðan síðast.
Ég er ekkert búinn að minnast á allt fólkið sem mér þykir vænt um heima fram að þessu. Mér þykir vænt um ykkur öll!
Mamma,
pabbi,
Ásta,
Hjalti,
amma,
afi,
amma,
Brynjar,
Þórður,
Daði,
Kolbrún,
Hjálmar,
Katla,
Þórunn,
Drífa, Elmar, Hans, Hans, Bárður, Jón, Sveinn, Þórhildur, Guðrún, Hákon, Kristján, Eiríkur, Egill, Magnús, Róbert, Rakel, Tumi, Stefán, Lilja, Sóley, Birkir, handahófskennt fólk sem er indælt og fleiri
(ef ég gleymdi að minnast á þig kæri lesandi, þýðir það ekki að mér þyki ekki vænt um þig). Knús til ykkar og njótið lífsins og hljóðsins!
STÆRÐFRÆÐI MILLIKAFLI
Ef einhver hefur áhuga, þá finnst mér þetta mjög þægileg leið til að reikna deilingar með heiltölum í huganum:
segjum til dæmis 34/7
skref 1: hversu oft gengur 7 upp í 34? Svar: 4 sinnum (7*4=28) og afgangurinn er 6.
skref 2: hversu oft gengur 7 upp í 6*10 (afgangur úr skrefi 1 margfaldað með 10)? Svar: 8 sinnum (7*8=56) og afgangurinn er 4.
...
skref x: hversu oft gengur 7 upp í afgang úr skrefi x-1 margfaldað með 10? Svar: y sinnum og afgangur er r.
...
lokaskref ef mögulegt er (ef þú færð nákvæmt svar), annars kemstu líka fljótt að því ef þú ert farinn að endurtaka brot, og þá geturðu hætt.
Þannig er 34/7 = 4.8571428571428...
annað dæmi 10/4
skref 1: 4 gengur 2 svar upp í 10 og afgangurinn er 2.
skref 2: 4 gengur akkúrat 5 sinnum upp í 2*10=20
lokasvar: 10/4=2.5
STÆRÐFRÆÐI MILLIKAFLI BÚINN
Jæja. Það er ýmislegt búið að gerast síðan síðast, ófáar farsímamyndirnar og ægifögur náttúran.
Ég skar grasker. Aldrei á ævinni hef ég séð grasker áður augliti til ávöxts. Þau eru stærri en ég hélt, þyngri en ég hélt (eins og vatnsmelónur) og full af gumsi! Þetta er hefð hér sem ég verð að segja að ég er hrifinn af. Ég skar grasker með nokkrum skólafélögum úr eina áfanganum sem er ekki partur af verkfræðideildinni, heldur hljóðfræði (e. audiology) [NB uppáhaldsáfanginn minn, systems & signals áfangi, Fourier umvarpanir notaðar á hljóðbylgjur, gerist ekki mikið betra]. Við erum samtals 8, og ein þeirra bauð mér svona fallega að vera memm. Það myndast notaleg stemning, svona dundur stemning. Ætli þetta sé ekki svipað og að mála egg saman fyrir páskana t.d., eða skreyta piparkökur. Bíð bara eftir því að Ísland fari að flytja inn grasker. Gera þeir það kannski nú þegar? Ef Íslendingar ætluðu að taka upp þessa hefð, þyrfti bara að bæta við graskersskurðinum, við erum með búningana og partíin á hreinu nú þegar.
 |
| Þau voru með 9 grasker í skottinu. |
 |
| Hrekkjavökubland. Það sem vakti helst áhuga minn er örlítið nammi þarna, keilulaga og appelsínugult, sem ég hef oft séð í t.d. tölvuleikjum. Aldrei vitað hvað þetta er. Þetta heitir víst "candy corn" og er allt í lagi á bragðið. |
 |
| Opna graskerið efst. |
 |
| Taka allt gumsið út. |
 |
| Geyma fræin. |
 |
| Skera eitthvað út að eigin vali. |
 |
| Gestgjafinn átti golfsett (fyrir örvhenta) og mottu. Það var púttað fyrir allan peninginn. |
 |
| Já, ég var í rúllukragapeysu. Einhverjar athugasemdir? |
 |
| Að spila golf inni, vakti upp tilfinningu inni í mér að ég væri allt í einu rosalega ríkur (í peningum talið). |
 |
| BREWED IN MEXICO |
 |
| Tjillítjísdipp (e. chili cheese dip) ásamt flögum. Heimalagað og notalegt. |
 |
| Salta fræin, og setja inn í ofn. |
 |
| Fjarstýring með "amazon" og "netflix" takka. Einn daginn, Ísland. |
 |
| Ef kerti hefðu verið til staðar, hefðu þau verið notuð. Í staðinn notaðist ég við lampa. Ég myndi ekki vilja abbast upp á þennan. |
 |
| Ég fór líka í búning! Sem voru bara axlabönd, svört peysa, svört "Lennon/Harrelson/fleiri svalir gaurar" sólgleraugu og húfa. Ef einhver veit hver ég á að vera, fær sá hinn sami stig. |
Ef mynd er virði 1000 orða, þá eru x myndir virði 1000*x orða ef við gefum okkur línuleika. Mér finnst samt líklegra að eftir því sem myndunum fjölgar, þá minnkar virði þeirra. Segjum að fyrir hverja mynd minnki virði myndarinnar um 1%. Þá er virði x mynda: sum(1000*(0.99^i)) with i going from 0 to x-1. Þannig að 23 myndirnar hér fyrir neðan eru ekki virði 23,000 orða, heldur sum(1000*(0.99^i)), i from 0 to 22 = 20638.6 orða. Reyndar er hægt að einfalda þessa summu með kvótaröð (e.
geometric series) þannig að virðið verður 1000*(1-.99^x)/(1-.99). Sjáum einnig að er x stefnir á óendanlegt stefnir virðið á 1000/(1-.99) = 100,000. Það þýðir að með þessari formúlu getur virði allra mynda í heiminum ekki verið meira en 100,000 orð. Sem ég held að þýði að þessa formúlu þurfi að endurhugsa ansi mikið.
 |
| Fór á smá rölt í miðbænum. |
 |
| Séð frá mínu sjónarhorni í rigningu, og já með regnhlíf! HAHA þetta gerist ekki oft á Íslandi. |
 |
| Fór í partí með Moosehead. Fékk lánaða osom bjórhlíf. Hitti gaur frá Kanada. Gaf honum Moosehead (sem er frá Kanada), hann var mjög ánægður. Það var stuð. |
 |
| Mmmmmmm, ekki jafngott og Reese's súkkulaðistykki samt. |
 |
| Félagi minn hér frá UAE, eða sem fleiri þekkja Dubai, gaf mér að smakka ýmis indversk "snökk". Mjög bragðgott allt saman og vel kryddað. Hann leyfði mér meira að segja að eiga allan "Hara Chiwda" pokann því honum finnst rúsínur ekkert það góðar. Gargandi snilld. |
 |
| Þarna var mér að mistakast að taka mynd af einhverju sem ég ætlaði að reyna að mæta á eða muna. Var of svifaseinn og það var komin önnur mynd á skjáinn. Hvað var þar á undan er mér hulin ráðgáta í dag. |
 |
| Þessar töflur eru á flestum hurðum á heimavistinni. Sumir eru bara sniðugri en aðrir. |
 |
| Þetta er/var bara of fallegt. |
 |
| Fyrsti snjórinn. Hefur ekki snjóað mikið. Sá hann ekki falla. |
 |
| Lauf sem haldast á sama stað nokkuð þurr. Magnað. |
 |
| Sumir eru bara með arabískt lyklaborð... |
 |
| Sá eitt stykki svona í fyrsta skipti (e. moon ring). Það var rosalega flott. Ánægður með að ég ákvað að ganga heim í það skiptið í stað þess að taka strætó (sem ber skemmtilega heitið Cambus). |
- Matthías, Iowa City, 11/19/2013