Saturday, April 19, 2014

Síðasta bloggið?

Hæ.

Þetta gæti orðið síðasta bloggið. Nú fer ég heim eftir mánuð, og sé ekki fram á að gera margt fréttnæmt þangað til. Læra, fara í próf og fljúga heim ef gæfan gefur. Hef reyndar svolítið verið að pæla í því að stofna kannski blogg ótengt þessu ferðaveseni mínu, þar sem ég get viðrað mínar pælingar með hugsanlega einhverjum öðrum en 0 og 1.

Annars hlakka ég mikið mikið til að komast loksins loksins heim! Held að fílingurinn verði svipað og í Múmínálfamyndinni þegar snorkstrákurinn kallar: "Hafið! Hafið er komið aftur!"

Campus.

ójá, þetta er íkorni

ákvað að losa mig við gítarinn fyrst ég er að fara heim, ákvað að gefa hann, afhending fljótlega
Sá þennan fína disk og var óneitanlega hugsað til mömmu

Tók að sjálfsögðu mynd af framleiðandanum án þess að hugsa, sé síðan núna að þetta er nú ekki merkilegra en svo að vera frá 2013...

Afsakanir afsakanir. Planið (alltaf pönn intenndid þegar sagt í stærðfræðilegu samhengi) var a) að hafa ekki þetta surface mount (hlakka ekki til að reyna að lóða það) og b) að hafa power plane (ground plane). Það var smá misskilningur og við létum byggja eldri útgáfu af hönnuninni. Frekar kúl samt, bara hægt að láta rafverslunina í skólanum hafa hönnunina, og þeir búa þetta til (ekki frítt). Þeir sögðu mér að þetta hefði verið allt kopar sem síðan er tekið í burtu í einhverri vél, sem held ég hálfpússar hann bara í burtu (engin sýra í þetta skiptið).

Ah. Gott að fá smá súkkulaði að heiman. Í tilefni Föstudagsins langa fékk ég mér eitt, eða "Good Friday". 

Ákvað að skella mér að skoða Maquoketa hellana með einhverju internasíonal krádi. Fór á þessum í hellana....

jebb það voru hellar.


og gott veður... sorrí Ísland og snjór



Svo spennandi.

Einhver mjög furðuleg tré "stick trees" er einhvers konar óformlegt heiti. Lítur svolítið út eins og einhver hafi troðið spýtum í annars venjulegra tré.



Iowa er ansi mikið bara akrar og akrar (ekki skal rugla saman ökrum og ensku mælieiningunni "acres", þó að líklega sé þetta skylt, og bæ ðe bæ, 1 acre = 4000 fermetrar).


- Matthías, Iowa City, Iowa, 04/19/2014

Saturday, March 29, 2014

Er 29 prímtala?

Já.

En allavega, ýmislegt búið að gerast, sumt sem á ekki heima á vefnum. Skólinn gengur bara ágætlega og andlega líðan mín hefur farið svona upp og niður. Loksins eru komnir fleiri íkornar! og ég get ekki beðið eftir því að heyra í kribbunum í þögninni. Sakna Íslands.

ef grannt er skoðað sést íkorni á syllunni

það er eitthvað æðislegt við það að sjá tunglið að degi til svona oft eins og hér

Var að gera verklegt með einum skólafélaga mínum þegar ég mundi hvað það er gaman að fikta með viðnám, þétta og IC-rásir. Fyrir forvitna, var verkefnið að þessu sinni að gera IR sendi sem tekur við merki frá iPhone. Frekar kúl. Virkaði reyndar ekki alveg, en samt nógu vel til að fá labbið checked off, sjáum hvort finnist einhver lausn á þessu. Út úr VCO-inum kom kassabylgja eins og vera ber (allavega nokkuð nálægt), en 555 timerinn (tekur við kassabylgju sem trigger) virtist gefa út 50% duty cycle bylgju í staðinn fyrir 10% eins og hann átti að gera. Sem er undarlegt, því þegar við notuðum tíðnigjafann til að gefa 555 timernum kassabylgju, þá virkaði hann eins og hann átti að gera!

Síðan í næsta labbi eigum við að gera power supply, og eigum að nota PCB borð (printed circuit board). Eftir að hafa komist í snertingu við Kristján Purkhús og alla hans snilld er erfitt að finnast maður ekki vera advanced miðað við þá sem hafa aldrei átt við slíkt. Hér er ætlast til að maður búi til layoutið í Multisim eða einhverju PCB forriti og láti síðan Electronic Shop fá það (búð sem selur rafeindadót, þétta, brauðbretti og allt sem maður þarf, er staðsett í skólanum!) og borgar eitthvað fé og þeir láta mann fá borðið með koparlínunum.

rásin er ekki tilbúin þarna... en btw, kostaði þetta brauðbretti aðeins $7

eitthvað svona ætti að koma út... (PCB)

Að lokum koma nokkrar myndir og auðvitað myndband af kóksjálfsala. Þetta er bara æði.


CURLY FRIES

vöffluformið bragðaðist eins og drasl miðað við vöffluformin heima, ísinn var góður, jarðarber og piparmynta

Já. Þetta gerðist. Aldrei hef ég séð þetta gerast í pool nokkurn tímann. Ef bláa kúlan yrði fjarlægð, færi sú appelsínugula ofan í og öfugt.




- Matthías, Iowa City, Iowa, 03/29/2014

Monday, March 17, 2014

Tuesday, February 25, 2014

Show must go on

Halló.

Í fréttum er ekki margt... skólinn heldur áfram, lífið festist í hálfgerðri rútínu, það sem var nýtt og spennandi verður venjulegt.

Er ekki kominn tími á smá myndir?



Ekki amalegt að fá sent tímarit í boði IEEE... sérstaklega þar sem þetta er tímarit sem þeir senda ekki frítt til Íslands.

Einhver þau allra stærstu jarðarber sem að ég hef séð.

Það er bara svona... en að öllu gamni slepptu er þetta líklega eitthvað sem hefur dottið þegar einhver var að fara með hreinan þvott til baka í herbergið sitt.

EKKI eins og íslenskt fanta, þetta fanta er mun líkara appelsíni og gott á bragðið.

Í boði "Íslendingsins" sem ég ræddi um í síðustu færslu. Ég fékk mér kannski aðeins of mikið í tilefni þjóðernis áfengisins.

Það er handklæði, það er...

já, hér er sól... skítkalt, en sól. Fólk með sólgleraugu um vetur. WHAT



omnomnom!!! 

það á ekki að hleypa manni út...

einmitt...

- Matthías, Iowa City, Iowa, 02/25/2014

Monday, February 3, 2014

Klárlega fréttir

Hæ.

Það næsta sem ég hef komist því að hitta Íslending hér í landi hinna frjálsu gerðist í dag.

Gegnum vinkonu mína hérna, hitti ég mann sem fæddist á Íslandi, á bandaríska foreldra (voru á Íslandi út af hernum) og flutti mjög fljótlega aftur til Bandaríkjanna. Hann var síðast á Íslandi síðustu önn í nákvæmlega sama prógrammi og ég er í hér. Semsagt skiptinemi frá Iowa sem fór til Reykjavíkur í Háskóla Íslands.

Mjög gaman að geta talað íslensku augliti til auglitis, þó að auðvitað sé íslenskan hans ekki reiprennandi, en mér þykir mikið til koma hversu mikið hann kann, sérstaklega miðað við að hann virðist hafa lært það allt nánast sjálfur (foreldrar hans tala ekki íslensku).

Haha, líka gaman að heyra að hann hafi verið fullur á Harlem og Dollý.

Kveðja,
Einn ánægður Íslendingur í Bandaríkjunum

Friday, January 17, 2014

Kalifornía - myndadump #5

Hæ.

Nýkominn aftur til Iowa City. "Home" sweet home. Set hér inn myndir af símanum sem mér tókst ekki að henda inn á meðan að á ferðinni stóð.

Hef ekki smakkað þetta, en get ekki sagt að mér finnist þetta góð hugmynd...

aaaaw yea

einhvers staðar á leiðinni til Kansas

Horft á Kansas City

man ekkert af hverju ég tók mynd af þessu.


lest! þvílíkt framandi fyrir Íslending eins og mig

hvar annars staðar en í Texas?

hvar annars staðar en í Bandaríkjunum? sér hnappur fyrir Dr. Pepper.

þetta úrval

Electric Twist Lemonade, gott stöff (romm minnir mig)


Hrikaleg mynd, en viðfangsefnið er 50 senta peningur. Fyrsta sinn sem ég sé slíkan á ferð minni hér, það er víst líka til $1 mynt.


Jebb. Scientology. Fórum í smá kynningarferð um safn um líf L.Ron Hubbard. Það var áhugavert.



It's Casio (on a plastic beach). I approve.

Þessir náungar eru frekar vinsælir hér, déskoti vel gert hjá þeim

MELÓDIKA!!!!! jeeeeeeeeeeeeeeee þvílík endemis snilld sem þetta hljóðfæri er.


keypti þetta, tannbursta, tannkrem, cheetos snakk og pylsubrauð fyrir 2000 kr. í búð sem er meira í líkingu við Hagkaup heldur en Bónus (ef Walmart væri Bónus). Hræbillegt. Annars eru þessar pylsur sko ekkert í líkingu við SS pylsur.


- Matthías, Iowa City, Iowa, 01/17/2013