Monday, December 9, 2013

ORLANDO FLORIDA og fleira

Hæ.

Fréttir:

Ég fer til New York 21.-26. desember. Farið verður með sömu ferðafélögum og í ferðinni til Orlando að viðbættum einum eða fleirum. Það eru margir staðir í Bandaríkjunum sem mig langar að heimsækja, og New York City er einn af þeim. Stórborg svo fræg að það er eins og "setja inn góða myndlíkingu hér". Ólíkt ferðinni til Orlando, þá er þessi ferð meira um að skoða borgina í stað þess að fara í rússíbana, og hlakka ég til þess óneitanlega. Ég hef heyrt minnst á hluti eins og Times Square og Statue of Liberty.
Jól í New York? Fyrstu jólin þar sem ég er ekki umvafinn ylmi íslensks heimilis og í faðmi fjölskyldunnar. Það verður áhugavert. Held að það verði líka mjög flott, örugglega mikið af ljósum. Ég veit um nokkra sem ætla að vera í NY á gamlárskvöld, sem væri örugglega reynsla út af fyrir sig. Eitt stærsta partí heims á sér stað þá.



Planið er að vera hér í Currier yfir jólafríið (hér frá um 20.des - 20.jan). Það verður örugglega eins og draugabær því allir verða farnir. Farnir. Til síns heima.

Spring Break (vor pása) er fyrirbæri hér eins og flestir vita. SPRING BREAK! Fyrir þá sem eru ekki of viðkvæmir fyrir 90% berum líkömum kvenna, er áhugaverð reynsla að gúgla "spring break". Ég er ekki enn búinn að ákveða hvað ég ætla að gera yfir vor pásuna, en ég ætla ekki að plana neitt of dýrt, allavega ekki fyrr en að ég veit hvort ég á einhvern pening eftir allar þessar ferðir... það kemur í ljós.

Fór út og það var kalt. Það hefur verið stundum um -20 °C hér. Finnst ekkert það kalt alltaf, en tek samt eftir því (með smá kvef) að sá littli vökvi sem er í nefinu á mér, frýs stundum. Maður finnur fyrir því þegar maður andar :) skemmtilegt! ooooog snjórinn hér glitrar líka í myrkrinu og tilheyrandi ljósum, svo fallegt.

Orlando, Florida var algjör snilld. Einhverjir hafa máske séð að félagi minn tók fullt af myndum og setti á facebook. 4 skemmtigarðar á 5 dögum. Þetta var líka tekið af metnaði, byrjuðum eins snemma og mögulegt var (oftast um 8) og vorum þangað til garðurinn lokaði (nánast), oftast um 18-21. Áður en ég fer út í þá snilld, langaði mig aðeins að minnast á fólkið í Orlando. Í Iowa er aðallega hvítt fólk og Asískt. Í Orlando er mun hærra hlutfall svartra og hispanskra (íslenska?). Það er meira það sem ég hugsa um þegar ég hugsa um týpísk Amerísk hlutföll fólks. Eitt áhugavert er að ég fór út að ganga með félaga mínum á laugardagskvöld, djammkvöld, og við gengum eftir stórri götu. Og maaaaaður, bílarnir. Allir bílarnir skinu eins og barnsrass, voru breyttir svo mikið, og svo mikið króm að blindaði augun. Bílar eins og þessi og þessi.

#1 Universal Studios

Þessi garður var eiginlega mestu vonbrigðin, en fínt að við tókum hann fyrst. Mun minni en maður hefði haldið, og ekki það mikið af hlutum að gera. Við kláruðum allt áhugavert frekar fljótt. Samt gaman, 3D bíó með Despicable Me, sjá "leikmynd" af utanverðu New York Public Library (fun fact: við gætum farið á alvöru safnið í NY), fara í rússíbana með þemanu "The Mummy Returns" með óborganlegum leik Brendan Fraser í lok rússíbanans (það var einhver rosalega lélegur brandari), Shrek 4D, Fear Factor Live (akkúrat það sem þið haldið), E.T. rússíbani (mjög rólegur) sem leit út eins og hjól (það var stuð), og TERMINATOR 2 3D. Terminator var klárlega besta dæmið, Arnold Scwharzenegger með þvílíkan snilldarleik og henti út one-linerum (íslenska?) hvað eftir annað. Þetta er semsagt stutt mynd sem er búin til sérstaklega fyrir þetta bíó, var max 30 mín. Það var líka fólk sem lék t.d. Scwharzenegger og var að leika fyrir framan tjaldið samtvinnað með myndinni, frekar töff (og já, þau fóru á mótórhjóli inn í tjaldið).



#2 Universal's Island of Adventure

Jemundur minn. Þetta var sko garður. Nóg af rússíbönum og skemmtilegheitum. Hulk rússíbani, Dr.Doom fallturn, Jurassic Park vatnsferð, einhver fyndin sýning með Poseidon að berjast við einhvern eldgaur (við fórum í herbergi með sem var ákveðið stórt, síðan slökknuðu ljósin í kannski 5-10 sekúndur og þegar ljósin kviknuðu aftur voru veggirnir farnir (herbergið orðið miklu stærra) og fyrir framan okkur var eins og grjót og 3 skjáir þar sem Poseidon barðist. Frekar hellað), og síðast en ekki síst: Heilt horn tileinkað Harry Potter.

Þetta Harry Potter horn var rosa flott, endurgerð af Harry Potter kastalanum, bærinn Hogsmeade með búðum sem seldu m.a. töfrasprota, og margt fleira. Síðan gat maður fengið sér Butterbeer (ekki með áfengi samt :( ). Þarna fór ég í besta rússíbana/sýndarveruleika sem ég hef séð. Maður var í rússíbana sem ferðaðist um og síðan var maður meirihlutann fyrir framan skjá sem sýndi Harry Potter heiminn, og manni fannst eins og maður væri að fljúga um á kústi (já það var Quidditch), þegar hann flaug niður, hreyfðu þeir einhvern veginn rússíbanann þannig að manni leið þannig. Vírað lið.

Kannski mikilvægast af öllu. Í þessum garði fékk ég það allra besta heita súkkulaði (kakó) sem ég hef á ævinni smakkað (og hef ég smakkað ófá).


#3 Disney's Hollywood Studios

DISNEYWORLD tékk. Þetta var stuð, Star Wars ferð svipuð og þessi með Harry Potter, nema að maður var bara í herbergi og þeir gátu ekki hreyft mann jafnmikið, samt svít að fljúga um á geimskipi og sprengja helstirnið. Sá LIVE gæja keyra um á bílum til að taka upp hasaratriði í mynd, nóg af eldi (frekar töff), magnað hvað allt leit mun meira töff þegar þeir sýndu afraksturinn (eftir klippingu, slow motion og tilted myndavélar). Besta 3D mynd sem ég hef séð, Muppets! um 30 mínútna snilld, á einum tímapunkti reyndi ég að grípa kökuna, en greip í tómt (kakan endaði í andlitinu á birninum). 





#4 Busch Gardens

Skemmtileg blanda af dýragarði og skemmtigarði. Við fórum ekki sérstaklega að sjá nein dýr, en sáum samt flamingóa (þessir bleiku...), tígrisdýr (mun stærra en ég hélt, pæling að reyna EKKI að berjast við eitt stykki svoleiðis), fíl, blettatígur (e. cheetah) og fleira. Þarna voru án efa bestu rússíbanarnir, nóg af beygjum og föllum og hringjum, m.a. eitt stykki 90° fall. Þar var öskrað eins og smástelpa í fyrsta skiptið sem við fórum (þeir stoppa líka og láta mann horfa niður áður en þeir falla).



Þá er ekkert eftir nema myndirnar. pabbi, hér kom myndavélin að góðum notum :) Áður en myndasyrpan hefst, er hér myndband af kengúrum. Mæli með því.




Stundum er extra gaman að vera í flugvél.






Fyrir utan hótelið.

International Drive (hótelið var þar).


Jack Daniel's Breezer.


Já, í flösku, blandað fyrir mann: Viskí og diet coke. Hvað í...


aaaaaahmerískur bjór er ekki eins og evrópskur bjór.

Sjáið þið bílinn fyrir miðið? Einmitt það sem ég var að tala um.



Fríi parturinn af Universal. Veitingastaðir, klúbbur, búðir sem selja varning (auðvitað) og guð má vita hvað fleira leynist þarna.





Make ... not war.


Verst að ég fór aldrei á staðinn þegar hann var á Íslandi... 





Stundum tek ég myndir af skrítnum hlutum. Eins og þessi vifta, hrikalega gömul og lúin, falin í loftinu á milli hátækniskjáa.

Rock 'n Roller coaster.

Þarna sést New York Public Library (ekki alvöru).

Fugl aftanvið dekkið?

Fugl á gangstéttarbrúninni?

in the name of love.


New York Public Library.

Þarna kom það.



Dora the explorer fimleikafólk klætt eins og apar. Gæði.



Tvö gisk hvaða bíll þetta er og lestin í efra vinstra horninu.






mmmm sporðdrekar... (fear factor live)






Dr. Seuss hornið!! Strákarnir voru ekki jafnhrifnir af því og ég að fara í rólega rússíbanann sem var þarna og hringekjuna :'(

Það sem þeir leggja í þessa skemmtigarða...

Tíst.

Tíst.


HARRY POTTER

Welcome to Hogsmeade.





hvur fjárinn, þetta er magnað.





Smá hversdagsleiki í öllu gervinu.






Já, sumar myndirnar voru skjár og persónurnar töluðu og ferðuðust milli ramma.




Hæ, myndvörpun af Dumbledore, gaman að hlusta á þig.



Harry, Ron og Hermione?

Já, myndin var skjár.

Gæinn: Hvort viltu frosinn eða kaldann?
Ég: Hver er munurinn?
Gellan: Annað er eins og krap, hitt er eins og gos.
Gæinn og ég: Einmitt það sem það segir.
Ég við gelluna: Hvort ætti ég að fá mér?
Gellan: Mér finnst frosni góður, viltu svoleiðis?
Ég (mjög erfitt að segja nei við þetta andlit): Ok.

Efitrmálar: Mér fannst sá frosni ekki góður, en sá kaldi fannst mér góður (einn af ferðafélögum mínum fékk sér svoleiðis).
Boðskapur: Ekki hlusta bara á falleg fés.




Daily Bugle. Allt mjög raunverulegt (not, ég prófaði meira að segja að hreyfa stólinn en hann er límdur). Var hugsað til þín Brynjar er ég sá ritvélina.

Besti brandari sem ég hef heyrt í langan tíma (inni hjá fréttatímaritinu The Daily Bugle úr Marvel heiminum):
You don't win a Pulitzer by sitting on your asscii characters... So get moving!

Tjah samanlagðar misheppnaðar tilraunir fyrir um $10. Klóin sigrar.








Já, húsið er skakkt.




wat



huh?

eeeeh?

Nú skil ég. 




MICKEY









Hæ skjávörpun af Aerosmith. Það var fullt um þessar varpanir, stundum var það furðu raunverulegt, nánast eins og heilmynd.



JESS



Sci-Fi veitingahús. Frekar svalt, fólk sat í bílum eins og í bílabíói, nema að bílarnir voru borð sem fólk sat við og borðaði. Myndir á skjánum innihalda meðal annars Tomma og Jenna (í geimnum).

Stroller parking <3

Admiral Ackbar!




Hver kannast við þennan stað?






Já! Live American Idol, fólk í garðinum sem hafði unnið fyrri keppnir í garðinum kepptu til úrslita. Sá sem vann fékk gullmiða sem gerir henni kleift að sleppa við raðir í áheyrnarprufu í alvöru American Idol. 







Það sem einkenndi mikið af þessum skemmtigörðum voru öskur í fólki í rússíbönum.





oh þessir litir... 



KENGÚRUR eru OSOM



Svartur svanur?

Ég veit ekkert hvaða fugl þetta er...







Pálmatré! Kúl.


Charlotte eða Cleveland.
Og farsímamyndir:



Hversu gamalt ætli þetta rútusjónvarp sé?

Chicago!

Píanóherbergið í Currier. Mjög kósí.

mmm...


Kristján?

Ég fór á Swing Dance Club Social Dance. Það var muuun skemmtilegra en ég bjóst við. Dansaði við fuuuullt af fólki. Greinilega þess virði að fara einu sinni í viku og dansa :) koma kannski einhverjar myndir af þessu á facebook...

Renna sér niður brekku á pappakössum. Hverjum hefði dottið það í hug? Ég hef alltaf notað sleða. Þetta svínvirkaði hins vegar.




ah flugvellir


Chicago!!
Það hlaut að koma að þessu... bragðaðist... ágætlega. Sálin mín nærðist meira en maginn.


mmmmm

mmm Cherry Coke í sjálfsölum? Halló Ameríka.



SVOOOOOOOOOO GOTT



Ég veit ekki hvað var í gangi þarna... (pun intended)

Smá bónus fyrir ykkur ljúfurnar sem nenntuð að skoða þetta allt (eða skrolluðuð bara alla leið niður). Það var ekki auðvelt að halda augunum á skákborðinu.


- Matthías, Iowa City, 12/09/2013