Thursday, September 26, 2013

Eftir mánuð er losnaði úr ánauð

Ég var í fyrsta skipti að heyra um línuna "shut up or we will bring freedom to your country too". Þetta var í framhaldi af viðræðum við Svía um það af hverju Bandaríkin hafi bara fært "frelsi" til þjóða sem hefðu ríkan olíuforða.

1. Heimspekilegar pælingar og bull í mér
2. Skólinn hér só far
3. Myndadump #3


1. Heimspekilegar pælingar og bull í mér

Mér hefur þótt gaman að pæla í lífinu síðan fyrir svona tveimur árum. Ég hef öfundað heimspekinga (lesist: heimspekinema) að því leyti að þeir fá að vinna við það að pæla í lífinu, því sem fólk hefur gert í fortíðinni, því sem það gerir í nútíðinni og gæti gert í framtíðinni. Þetta er eitthvað sem ég fæ ekki gert nema utan vinnutíma. Ég man að ég hef hugsað: Hvernig er hægt að sóa lífinu í það að reyna að skilja það?
Augljós rök gegn því eru að við það að skilja lífið betur kemstu kannski að því að þú hefðir ekki átt að eyða því í að skilja það heldur að gera eitthvað annað sem nú er of seint. Ástæðan fyrir því að ég tek ekki undir það er hugsunarháttur minn, sem gengur út á það að ég sé ekki hvernig sá möguleiki er fyrir hendi að það að skilja eitthvað betur sé ekki gott. Verkfræðingurinn í mér kannski að tala, langar til að skilja sem flest.

Er það partur af aldrinum að pæla meira í lífinu? Ég held það. Ég man eftir samræðu við ónafngreint gamalmenni, þar sem spurningin var: Hver er tilgangurinn með þessu öllu? Svörin voru ekki mikil, en eitt sem ég tók eftir er að gamalmennið virtist vera með miklu meiri samkennd með heiminum öllum. Var meira að pæla í heildarmyndinni heldur en allavega ég; stríðum úti í heimi, hvernig mannkynið myndi spjara sig í framtíðinni, mannréttindamálum o.fl. Kannski einkennir það ungt fólk, að sjá ekki lengra en nefi sínu nær.

Það er kannski ekki bara það að ég er farinn frá eyjunni með vatnsveggjunum sem fær mig til að hugsa. Þrátt fyrir að það sannarlega ýtir undir eitthvað, kannski bara því að það að breyta um umhverfi neyðir mann til að pæla í hlutum sem maður hafði ekki pælt í áður.


2. Skólinn hér só far

Mig langar að tala aðeins um muninn á skólanum hér og heima.

Augljós munur er sá að hér er meira símat. Klassískt er kannski 25-50% lokapróf, 30-40% heimavinna yfir önnina og 20-40% miðannarpróf (til samanburðar er týpískt í HÍ hjá mér 60-70% lokapróf). Miðannarprófin gilda oft jafnmikið eða meira en lokaprófin (hvort sem þau eru tvö eða eitt). Námið er frekar svipað og heima að því leyti að það eru verkefni ca. 1x í viku í öllum áföngunum, hingað til hefur námið verið nokkuð auðveldara, en ég hugsa að það verði erfiðara þegar öll projectin koma og áfangarnir þróast.

Hvað varðar kennarana, þá bjóst ég kannski við að þeir væru betri hér. Ég myndi aðallega segja að það væri aðeins öðruvísi. Stundum, stundum ekki. Almennt myndi ég þó segja að kennararnir hér hefðu aðeins meiri áhuga á því sem þeir eru að kenna heldur en í HÍ. En virðing mín fyrir HÍ gerir ekkert nema að aukast eftir veru mína hér. Eitt sem vert er að nefna að Bandaríkin eru að einhvejru leyti menntunarmiðja heimsins, og gaman er að segja frá því að einn gestafyrirlesarinn í áfanga um þráðlaus nema-net hafði unnið fyrir DARPA sem áttu stóran part í internetinu og margt fleira. Stendur auðvitað fyrir eitthvað tengt "vörnum", Defense Advanced Research Projects Agency. Það var frekar kúl að vera svona nálægt hlutum sem þessum.

Munurinn sem mér finnst kannski mest hressandi, er að mér finnst vera minni áhersla lögð á teóríu hér og meiri áhersla lögð á praktík. Frösum eins og "this is what you actually need to know" hefur verið varpað fram hér sem ég kannaðist ekki við frá Íslandi. HÍ er frekar teórískur hugsa ég. En það gefur manni samt mjög góða þekkingu á efninu (hugsanlega dýpri en ef maður er bara í praktíkinni) ef maður lærir það þannig...

Þessu skal vitaskuld tekið með nokkrum únsum af salti. T.d. hef ég bara verið hér í rúman mánuð, er farinn að hlakka smá til að byrja í lab-i í áfanganum þráðlaus nema-net (WSN). Þar mun ég læra eitthvað á Zigbee útvörpun skilst mér (halló Kiddi).



3. Myndadump #3

Gægjugöt!!!! ó já


Hi Leon


Sjáið þið fánann vinstra megin?!

Ísland með sinn eigin túristabækling, naiz. Fullt af dóti þarna sem ég vissi ekki... ætti kannski að vita. Eitthvað um íslenska þingið, norðurljósin og m.a. Gullfoss og Geysi. Fyndið að ég man ekki eftir að hafa séð Gullfoss og Geysi. 

Var sjálfboðaliði í klukkustund á svokölluðu Study Abroad Fair. Það voru fullt af borðum frá fullt af löndum að kynna leiðir til að læra hjá þeim. Ég var á borðunum með Reciprocal Exchange sem er það sem ég er í. Þ.e. þú borgar skólagjöld í þínum skóla, ferð út og þarft ekki að borga skólagjöld þar. Mjög sniðugt dæmi.

Uppstillingin þegar ég er að vinna. Star Wars kemur alltaf sterkt inn.

Orðið aðeins persónulegra hérna með þetta upp á veggnum.

Hvað er þetta?! Já, þetta eru kartöflur. Bragðast eins og franskar, gott stöff. Hef pæld mikið í því hvernig þeir búa þetta til... ætli þeir séu með tvö skref af vélum sem bora göt í þetta?


IOWA ATHLETES YEAH #17 HARDCORE

Já. Ójá. Fyrsta engisprettan sem ég sé! (hef heyrt í ansi mörgum) Hvað það gladdi mig. Ég var að labba og leit niður þegar eitthvað stökk á mig og skoppaði til baka. Þessi litla elska :)


- Matthías, Iowa City, 09/26/2013

Saturday, September 14, 2013

Myndadump #2

Varúð: Þessi pistill inniheldur gúrkur.



Gaman að sjá fólk bara læra úti.

Besta morgunkorn sem að ég hef smakkað.

Gúrkur með steinum... Brá fyrst þegar ég sá þetta. En það er ekkert bragð af steinunum og áferðin á þeim er þannig að þetta er alveg eins og steinlaus gúrka.



To boldly go...

Star Trek pin ball. Prófaði það reyndar ekki.

Það sést ekki vel, en það stendur: For amusement only. Mér fannst það sniðugt.



- Matthías, Iowa City, 09/14/2013

Monday, September 9, 2013

Af hverju?


Tvær fullyrðingar langar mig að nefna sem mér finnst sanna gildi sitt og sannleika síendurtekið.

a) Sumt lærir maður bara af eigin reynslu.
b) Maður áttar sig ekki á því hvað maður hefur fyrr en maður hefur misst það.

a)
Þetta ættu allir að þekkja. Mér finnst í raun fáránlega mikið af hlutum sem hentugt væri að geta lært af reynslu annarra en bara virkar ekki nema maður geri það sjálfur. Það getur verið til dæmis að brenna sig, að drekka sig of fullan, að særa einhvern, að stíga á LEGO kubba, að fara í stríð og það að nota smokk. Persónulega tel ég þetta vera eitt af því sem alvarlega aftrar þróun mannkyns í átt að tilvonandi betri heimi.

b)

Þetta ættu allir að þekkja. Þetta á því miður alltof oft við. Í núverandi samhengi á ég auðvitað við þá staðreynd sem virðist vera að fólk verður mun meira þjóðernissinnað þegar það fer af landi brott.


Sama hvar maður er fæddur og uppalinn þá er það alltaf staðurinn þar sem maður er fæddur og uppalinn. Rökrétt ekki satt? Það er ómögulegt að breyta því, sama þó að maður búi í Kína í 50 ár. Maður verður aldrei Kínverji (nema maður hafi verið þar upphaflega). Maður verður ávallt, í mínu tilfelli, Íslendingur.

Það sama á við um fjölskyldu, og eins og hefur marg oft verið sagt: Maður getur valið sér vini en ekki fjölskyldu.


Í raun eru liðir a og b tengdir. Maður lærir af reynslunni að missa eitthvað að meta það.


Þá kem ég að aðalviðfangsefni bloggsins að þessu sinni. Af hverju að gera eitthvað svona eins og ég er að gera? Maður hefur heyrt aftur og aftur, já þetta er frábær reynsla, víkkar sjóndeildarhringinn og svo framvegis. En hvað á fólk við þegar það segir að þetta víkki sjóndeildarhringinn eða sé frábær reynsla? Það sem ég hef alltaf ímyndað mér að það þýði er að maður verði umburðarlyndari og sjái fleiri hliðar á heiminum sem kristallast í því að maður hittir fólk frá öðrum heimshlutum. Góð reynsla gæti átt við það eða kannski að standa aðeins á eigin fótum eða eitthvað annað. Þetta gæti í raun átt við margt. Allt gott og blessað og ég get tekið undir það. En...

Það sem mér finnst vera helsti ávöxtur slíkrar farar (og kannski á einhver við þetta atriði þegar hann segir að þetta "víkki sjóndeildarhringinn") er að maður lærir betur að meta það sem maður hefur/hafði.

Lítil stæði fyrir mótorhjól!

Amerískt! Fullt af heftum og leifum af auglýsingum og gylliboðum

Myndavélin er ekki nálægt því að ná því hvað það er notalegt og fallegt þarna á næturna. Til dæmis að horfa yfir ána og hlusta á engispretturnar í kyrrðinni og hlýjunni.


Ég skil vel af hverju þetta náði ekki vinsældum á Íslandi

A.m.k. einn íkorna fyrir hvert blogg?

Trén hér eru falleg. Feitari og pattaralegri en trén á klakanum, skiljanlega.



Sniðugt spil. Mæli með því.

Mikið af húsunum eru með svona rauðum múrsteinum. Evrópskt?

All American Beef & Cheese

"Ekkert er eins og það var og hefur aldrei verið." - Mamma

"Allt er eins og það er og hefur aldrei verið." - Hvernig ég mundi þetta



- Matthías, Iowa City, 09/09/2013

Sunday, September 1, 2013

Amerískur fótbolti, "tailgating" og rauð partíglös

Enn og aftur blogga ég til að losna samviskusamlega við þessar myndir sem ég tek af og til. Í þetta skipti verður greininni skipt í 3 hluta.

1. Amerískur fótbolti
2. "tailgating"
3. Rauð partíglös

1. Amerískur fótbolti

Þið þekkið þetta, það sem Ameríkanar kalla fótbolta köllum við amerískan fótbolta. Íþróttin þar sem gæjarnir eru með hjálma og rúgbíbolta og reyna að komast yfir völlinn og eru teknir niður og allir hrúgast ofan á þann sem heldur á boltanum. Ég fór á eitt stykki svona leik. Við skulum segja að minnsta kosti að það hafi verið áhugavert (ég sé mig ekki fyrir mér að stunda þetta mikið nema bara fyrir félagsskapinn). Þetta var víst svona nokkuð hófsamur leikur, ekkert mikið hatur þó að það hafi verið búað á andstæðingana, Northern Illinois Huskies sem btw unnu með 3 stigum á síðustu mínútunni (field goal).

Það sáust nokkrir rauðir flekkir á svæðinu þar sem Huskies aðdáendur sátu í sínum einkennislitum, rauðu og svörtu.





Kinnick Stadium

The marching band

Leikmennirnir andspænis hvor öðrum


Þetta var svokallaður "gold" leikur og þess vegna eru allir í gulli (gulu). Einkennislitir Iowa Hawkeyes eru svart og gull. Síðan er víst líka "black and gold" leikir þar sem norðurstúkan t.d. er svört, austur er gul, suður er svört og vestur er gul.

Það var rosalega heitt þarna. Leikurinn tók 3.5 klst og það var sem betur fer ekki sól allan tímann þökk sé nokkrum skýjum en þetta var ansi rosalegt. Þetta var víst svona nokkuð óvenjulega langur leikur, en þeir eru vanalega svona 2.5 klst.

Ef einhver hefur áhuga á reglunum, þá skildi ég þær ekki neitt áður en ég sá þennan leik, og skil svona pínulítið núna. Þetta er víst nokkuð flókið miðað við ýmislegt annað. En í grundvallaratriðum gengur þetta út á það að hvort lið hefur 4 tilraunir til að komast 10 "yards" sem er ca. 10 metrar með boltann. Og það fást 6-7 stig fyrir touchdown og 3 fyrir field goal (sparka boltanum í markið. Leiknum er skipt í 4 quarters sem eru 15 mínútur hver, en tíminn er mjög oft stoppaður og þess vegna tekur þetta svona langan tíma (+ hálfleikur).

Í lokin fylgir léleg upptaka af þulinum áður en leikur hófst. YEAH



2. "tailgating" (verb: Tailgate)

Þetta er hugtak sem ég hafði heyrt þónokkrum sinnum áður en ég vissi hvað þetta var. Ég hélt að þetta tengdist því að "take"-a bíla, þ.e. að hanga aftan í bílum.

Síðan sé ég að Wikipedia þýðir tailgating: Tailgating is the practice of driving on a road too close to a frontward vehicle, at a distance which does not guarantee that stopping to avoid collision is possible. Approximately one third of rear-end collisions involve tailgating.

Hins vegar er þetta allt annað tailgating. Þetta tailgating sem ég á við er þegar Ameríkanar hópast saman, fara út í góða veðrið, setja upp skyggni, grilla, spila leiki og umfram allt drekka áfengi. Þetta er með því amerískasta sem maður sér, fólk í íþróttalitum að drekka og spila leiki (t.d. risa Jenga sem var málað í einkennislitum Iowa Hawkeyes) og hópast saman ungir jafnt sem aldnir.

Þetta er eitthvað sem fólk hér stundar fyrir íþróttaleiki (allavega amerískan fótbolta). T.d. á laugardaginn þegar ég fór að sjá leikinn sem byrjaði 2:30 PM, þá var þetta tailgating byrjað kannski um 9 AM.

Það er vert að nefna að drykkja á almannafæri er bönnuð hér og ekki góð hugmynd (allavega ekki niður í bæ þar sem oft eru löggur (með skammbyssur...)). En varðandi tailgating er það ólöglegt en samt leyft, þ.e. löggan gerir ekkert í því nema að það sé eitthvað vesen. Þannig að þetta er ágætis venue fyrir drykkju undir aldri (21!!!!).

Ég tók því miður ekki mikið af myndum, en þetta ætti að gefa réttu hugmyndina


Enn síðar sé ég að þetta er það sem Wikipedia kallar Tailgate party: http://en.wikipedia.org/wiki/Tailgate_party

tailgate party is a social event held on and around the open tailgate of a vehicle.

3. Rauð partíglös

[biðst fyrirfram afsökunar á skorti á alvöru myndum af rauðum partíglösum]

Nú hefur líf mitt verið fullkomnað í fjórða sinn. Það fyrsta var þegar ég vann Guitar Hero III á expert. Annað skiptið var þegar ég smíðaði minn eigin synthesizer. Þriðja skiptið var þegar ég sá íkorna hlaupa eftir götunni með stóra hnetu í kjaftinum og klifra upp í tré. Fjórða skiptið var þegar ég fór í partí þar sem notuð eru RAUÐ PARTÍGLÖS eins og í öllum amerískum bíómyndum sem innihalda drykkju.

Tekið af vefnum, en þið kannist við þessi glös. Þau eru líka stundum blá.
Talandi um partíglös, þá sýnist mér Ameríkanar drekka ansi oft allavega, en bjórinn þeirra er svo þunnur að maður þarf að drekka mun meira af amerískum bjór heldur en evrópskum til að verða fullur. T.d. drakk ég á fimmtudaginn, föstudaginn, laugardagsmorgun (í tailgating, bara lítið samt) og laugardagskvöld (þá var hið margumrædda partí). En þó að ég hafi drukkið það sem flokkast sem mikið fyrir mig á fimmtud. og föstud. þá varð ég ekkert sérstaklega fullur (lifur, ertu sátt við þetta?). T.d. sýnist mér skotin þeirra hérna vera þynnri oft en skotin heima mörg hver.

Allt þetta hentar mér reyndar ágætlega sökum áfengisþols míns :)

Moral of the story: Þó að Ameríkani segi að hann drekki mikið, þá skaltu minnka það sem hann segist drekka um svona 25-50% og ákveða viðbrögð eftir því (þessum boðskap skal tekið með nokkrum grömmum af salti og/eða tequila)

Og talandi um íkorna.

Hvar er íkorninn?


Ég og íkorninn fórum í störukeppni í ca. 20 sekúndur áður en hann klifraði lengra upp í tréð :)

- Matthías, Iowa City, 09/01/2013