Friday, January 17, 2014

Kalifornía - myndadump #5

Hæ.

Nýkominn aftur til Iowa City. "Home" sweet home. Set hér inn myndir af símanum sem mér tókst ekki að henda inn á meðan að á ferðinni stóð.

Hef ekki smakkað þetta, en get ekki sagt að mér finnist þetta góð hugmynd...

aaaaw yea

einhvers staðar á leiðinni til Kansas

Horft á Kansas City

man ekkert af hverju ég tók mynd af þessu.


lest! þvílíkt framandi fyrir Íslending eins og mig

hvar annars staðar en í Texas?

hvar annars staðar en í Bandaríkjunum? sér hnappur fyrir Dr. Pepper.

þetta úrval

Electric Twist Lemonade, gott stöff (romm minnir mig)


Hrikaleg mynd, en viðfangsefnið er 50 senta peningur. Fyrsta sinn sem ég sé slíkan á ferð minni hér, það er víst líka til $1 mynt.


Jebb. Scientology. Fórum í smá kynningarferð um safn um líf L.Ron Hubbard. Það var áhugavert.



It's Casio (on a plastic beach). I approve.

Þessir náungar eru frekar vinsælir hér, déskoti vel gert hjá þeim

MELÓDIKA!!!!! jeeeeeeeeeeeeeeee þvílík endemis snilld sem þetta hljóðfæri er.


keypti þetta, tannbursta, tannkrem, cheetos snakk og pylsubrauð fyrir 2000 kr. í búð sem er meira í líkingu við Hagkaup heldur en Bónus (ef Walmart væri Bónus). Hræbillegt. Annars eru þessar pylsur sko ekkert í líkingu við SS pylsur.


- Matthías, Iowa City, Iowa, 01/17/2013

Wednesday, January 15, 2014

Kalifornía og til baka

Næsta blogg...

Pabbi eins ferðafélagans (eigandi bílsins, eða mini-vansins) ákvað að láta laga bílinn með því að skipta um vél. Vélin var semsagt alveg ónýt. Ansi dýrt spaug að fylgjast ekki nógu vel með olíunni. (spurning 1: hefði olíuviðvörunarljósið ekki átt að lýsa? Svar: Jú, en það gerði það ekki. Spurning 2: Varla er það nóg bara að vera með litla olíu að kála vélinni? Svar: Sennilega ekki, en það hjálpaði alveg pottþétt ekki til, en vélin var líka orðin gömul) Viðgerðin átti síðan að klárast á fimmtudag, þannig að við höfðum um 3 daga áður en við fengum bílinn. Þá ákváðum við að nota almenningssamgöngur og fara til

Las Vegas í eina nótt. Það var frekar svalt, fólk úti á götunum að rétta manni klámfeng spil, spilavíti á öllum hótelum (þar með talið okkar) og fleira. Kom í ljós að til að vera á hóteli þarna þá þarf einhver að vera 21 eða yfir (þarft að vera 21+ til að spila fjárhættuspil), þannig að þar bjargaði ég deginum (hinir ferðafélagar mínir eru 18, 19 og 19). Hótelið var örlítið vafasamt, en samt nokkuð hreint. Veggfóðrið og teppið á göngunum var frekar slitið og það angaði allt af grasi þarna. Ég ákvað síðan að henda $20 (2400 kr.) á 17 í rúllettu. Það lenti á 11.

Williams "middle of no where" Arizona

Mér fannst virkilega fallegt landslagið þarna, fyi Grand Canyon er í Arizona

Dregnir...

Viva Las Vegas




þetta er inni en ekki úti...



Daði!?

fyrir hákarlana


Los Angeles, ja eða við vorum í Hollywood hverfinu, rétt hjá Hollywood Blvd. Vorum í LA í tvær nætur. Það var kúl. Virðist vera frekar artí pleis. En það er vert að segja að það eru mörg hverfi í LA og við sáum bara nokkur. Fórum á ströndina aðeins og skoðuðum svæðið. Í LA eru stjörnur á gangstéttinni sem innihalda nöfn á frægu fólki. Fengum ókeypis leiðsögn um safn um L. Ron Hubbard (sem fyrir þá sem ekki vita stofnaði Scientology trúnna). Það var áhugavert, hljómaði bara nokkuð eðlilega (svona self-help dæmi) og þetta hljómar eins og áhugaverður gaur, en þegar maður les eitthvað aðeins um Scientology sér maður hversu mikið rugl þetta er og peningasog.

á leiðinni til LA í rútu


 

frekar erfitt að henda ekki inn strandar "selfie" mmmm sól

mæmæmæ

Strönd í Santa Monica










Tekið á frekar epísku safni í LA, Getty Center, verk eftir fólk eins og Monet og Van Gogh

Þessi gríma minnir mig á Super Mario Bros. 2

Eitthvað fyrir þig mamma?



Santa Barbara í nótt. Þarna fórum við á ströndina og í feitt sólbað. Í janúar. Sólbað. Í janúar. Enn að reyna að átta mig á þessu. Það var ljúft. Þetta svæði var virkilega fallegt, verst að ég tók eiginlega engar myndir því ég var ekki með myndavél á mér, og það var mjög mikið myrkur. Mikið af hólum og hæðum og gróðri. Við löbbuðum upp á eina hæð þar sem var geggjað útsýni yfir fjöll og hæðir og borgarljós. Stjörnurnar skinu, tók eftir því að Orion sést auðveldlega, og að litli Björn lítur aðeins öðruvísi út heldur en á Íslandi og að ég þarf að læra fleiri stjörnumerki. Þarna sem og annars staðar í Kaliforníu er ansi mikið af fólki sem reykir gras. Það er ekki löglegt nema í lækningarskyni, en það virðist vera frekar auðvelt að verða sér úti um svokallað “medical card” sem gerir manni kleift að kaupa þetta löglega ef maður býr þarna.

[ENGAR MYNDIR]

San Luis Obispo í nótt. Líka virkilega fallegt og hlýtt auðvitað. Fullt af fjöllum og stöffi og auðvitað strönd. Eitt frekar töff líka, skólinn þarna Cal Poly á fullt af landsvæði þarna, og sem lokaverkefni fyrir m.a. byggingaverkfræðinga, rafmagnsverkfræðinga, vélaverkfræðinga o.fl. Þá byggja þeir hús eða listaverk (hönnunarverkefni) í fjöllunum þarna og það stendur svo bara þar þangað til það er orðið of hættulegt að það er tekið niður. Þannig er afmarkað svæði þarna fyrir þetta. Kíktum á fullt af húsum og listaverkum þarna.







Nánast villtir hestar, engar girðingar eða neitt, en skólinn sér um að fæða þá eitthvað



mmmhm 500 ml, nokkuð óvenjulegt, venjulega eru þetta 16 únsur sem er u.þ.b. 482 ml

strönd í SLO sem og annars staðar á Kaliforníu ströndinni



Ég á eftir að sakna Cheetos.


Næst er ferðinni heitið til San Fransisco og síðan keyrum við til Iowa. Á leiðinni til San Fran keyrðum við aðeins lengri leið til að fá betra útsýni, fórum meðfram ströndinni. Á hægri hliðinni voru fjöll og á þeirri vinstri var sjór. Mjög hlykkjóttir vegir. Gott dót. Vegna þess að við ákváðum að fara þessa leið (eftir meðmæli frá vini ferðafélaga míns sem leyfði okkur að gista í San Luis) þá sáum við líka seli!!! aaaaw jeee. Elephant seals. Sá líka íkorna...

mhm

sáum Elephant Seals af tilviljun






ákváðum að fara um klst lengri leið fyrir betra útsýni. Það var ekki slæm ákvörðun. Sjór vinstra megin og fjöll hægra megin, "coastal highway". 



San Francisco var stuð. Notuðumst við Couch Surfing, sem er vefsíða þar sem fólk býður ferðalöngum fría gistingu á hinum mismunandi stöðum, fólk sem býr þar. Lentum á ja áhugaverðum gaur, sem er fínn, en með sterkar skoðanir og nokkuð stjórnsamur. Sýndi okkur samt fullt af flottum hlutum í San Fran og eldaði fyrir okkur, það var indælt. Sáum Golden Gate, síðan fór ég og einn annar til Alcatraz fangelsisins sem var mjög áhugavert. Ekki vissi ég að þar hefðu verið 1 árangursrík flóttatilraun og önnur næstum. Fyrir áhugasama, þá hef ég nýlega verið að horfa á sjónvarpsþættina Prison Break sem svo skemmtilega vill til að gerast að mestu leyti í miðríkjunum (e. the midwest) m.a. í Illinois sem er rétt hjá Iowa, þannig að maður kannast við ýmislegt. Það sem þeir notuðu til að reyna að flýja fangelsið er rosalega svipað og það sem þeir reyndu í Alcatraz. Sama má segja um Shawshank Redemption. Greinilega einhverjar hugmyndir að fljúga þarna (ja að grafa sig úr fangelsi er kannski frekar beint af augum). Annars er ég búinn að fá mig fullsaddan af stórborgum og langar bara aftur til Reykjavíkur takk. Iowa city er annars ekki stórborg, heldur meira eins og Reykjavík í stærð, þannig að það er í áttina. San Francisco er aleg risastór og með fullt af hæðum og flottum bílum og stórum húsum. Síðan eru aðrar borgir alveg uppvið San Fran og meðfram flóanum, þannig að þetta er eins og ein risaborg.

Eitthvað frekar svít sameignarpleis á þaki í San Fran



og feiri háar byggingar

ekki golden gate strax




Fyrsta sýn af Golden Gate

á eyjunni þarna er Alcatraz fangelsið fyrrverandi




ekki slæmt


Alcatraz


bíómyndir...


einangrun




þetta átti að vera mynd af millirúminu sem 3 fangar notuðu, eftir að þeir grófu sig þangað úr klefunum, til að flýja (þeir bara löbbuðu út, sigldu á fleka úr regnstökkum og hafa ekki sést síðan) 

Þessir selir ákváðu bara að elta einhverja fiskitorfu og tjilla á höfninni þarna.




Chile Lime popp korn. Var mjög nálægt því að kaupa þetta. Ameríka...

Píanóstigi, spilaði nótur þegar maður labbaði.

Hef tekið eftir tunglinu að degi til hér í BNA mun oftar en á Íslandi. Spurning hvort það sé bara skýin eða eitthvað annað




Þá er ferðinni heitið til Iowa. Keyrðum til Salt Lake City (þar sem ég er núna). Síðan ætlum við að vakna snemma og reyna að komast til Iowa á morgun (um 16 tíma keyrsla).








myndavélin mín nær þessu ekki nægilega vel, en himininn var þrískiptur. Rétt fyrir ofan fjöllin var blátt, síðan vínrautt og að lokum ljósara blátt og tunglið fyrir miðið, ekki slæm sjón




Smá sidenote, Smash Bros. er mjög vinsæll hérna í Ameríku, ég man að á Íslandi voru ekkert það margir sem spiluðu þetta, en hérna spila þetta allir. Það er frekar svít. Bæði Melee og Brawl, en aðallega Brawl (því miður).



- Matthías, Salt Lake City, Utah, 01/14/2013