Wednesday, August 28, 2013

Myndadump og status update (strax farinn að tala eins og American)

Jæja.

Ekkert mikið nýtt að frétta.

Sendi 3 bækur á vitlaust address (allavega fann UPS ekki út úr því). Vona að hinir sendarnir finni út úr því.

Komst að því að sumar menningar eru öðruvísi en aðrar.

Nú hefst dömpið:

Hér þarf ekkert caption.

Iowa á á

Eitthvað DJ svítness. Ég náði bara rétt lokunum, en hann spilaði allavega Zelda.

Píanóið í Stanley Hall sem er samtengdur Currier (þar bý ég). Frekar flott herbergi með stórum gluggum sem sjá út.

Stanley Hall Piano Room (mín nafngift)

Eitthvað crazy party frá 5-7PM í kringum hús forseta skólans. Fólk að dansa og mascot-ið auðvitað og frír matur (hamborgarar aðallega!)

Já. Ég hef bara séð KRÍTARTÖFLUR hér. Ég hélt að enginn notaði slíkt lengur. Þeim til varnar nota þeir meira osom projectorinn sem sjá má á næstu mynd og venjulega myndvarpa.

Osom prjection frá projector sem glöggir geta giskað á hvað gerir. Kennarinn getur semsagt notað venjulegt blað (já hann þarf ekki glæru) og skrifað á það real-time og varpinn varpar því bara upp og stækkar. HÍ mætti alveg redda sér svona við tækifæri.

Minnir þetta einhvern annan á það sem þetta minnir mig á í hvert skipti sem ég labba þarna framhjá? (alltaf þegar ég fer að borða)

Ha? Rosalega er þetta óskýr mynd Matti. Hvað er í gangi? Já það er rétt, myndavélin ræður ekki við svona mikla SÓL. Hér er nefnilega SÓL í lok ágúst. Þetta er ótrúlegt. Lítill fugl sagði mér að það væri skítkalt á Íslandi.

Og já, btw þá bjó ég til twitter. Einhver gaur sem ég þekki ekkert bað mig um að adda sér. Twitter er mikið tekið hér. #twitterfevermaybe


- Matthías, Iowa City, 08/28/2013


Saturday, August 24, 2013

Kinnick Stadium, herbergisfélaginn o.fl.

Long time no blog. Djók.

Ég hugsa að ég bloggi ekki mikið þegar skólinn byrjar, nota þetta blogg kannski aðallega til að henda inn einhverjum myndum sem ég tek af einhverju og skrifa eitthvað smá um það til að losna við þær.

Efnisyfirlit:
1. Kinnick Stadium
2. Herbergisfélaginn
3. Annað

1. Kinnick Stadium

Eins og allir vita eru allir Ameríkanar mikið fyrir Amerískan fótbolta. Iowa háskólinn heldur úti svona ýmsum atburðum og dóti svona fyrstu vikuna aðallega fyrir nýnemana. Transfer stúdentar og skiptinemar fá svona að mestu leyti að fljóta með í því og fá að mæta á alla atburðina sem þeir vilja. Einn atburðurinn var "Kinnick Stadium Kickoff" þar sem farið var með alla á svokallað Kinnick Stadium sem er fótboltavöllur. Þar var öllum nýnemunum smalað saman til að mynda risastórt I. Síðan voru æfð lög og húrrahróp fyrir Iowa Hawkeyes sem er íþróttafélagið í þessum skóla. Þið þekkið þetta úr bíómyndunum, það er "mascot" sem heitir Herky the Hawk og það voru klappstýrur í snípsíðum pilsum með pom poms ásamt gæja í búningi sem lék Herky the Hawk og síðan var marching band með risastórum túbum (ekki svona venjulegum tónleikatúbum). Þetta var alveg áhugavert að sjá.


Kinnick Stadium, sést glitta í logo mascotsins efst, Herky the Hawk

Eitthvað segir mér að miðar í stúkurnar þarna efst kosti ansi mikinn pening



Þarna sést aftan á uppblásna útgáfu Herky og fleira, m.a. hinar margumræddu klappstýrur

Mynd tekin frá Iowa síðunni. Allir nýnemarnir, transfer og skiptinemarnir mynduðu I sem stendur fyrir hvað?
Ef þið eruð að velta því fyrir ykkur af hverju ég er uppi í stúkunni en ekki niðri hjá öllum nýnemunum, þá er það vegna þess að skiptinemar og transfer students fá ekki alveg sömu móttökurnar. Skiljanlega, þeir eru ekki endilega að fara að vera hérna í 4 ár. Við fengum líka svarta boli en ekki gula. Við erum samt á myndinni með stóra I-inu.

2. Herbergisfélaginn

Dylan, herbergisfélagi minn var að flytja inn núna í morgun. Hann býr í Cedar Rapids sem er borg ekki langt frá. Hann lítur út fyrir að vera mjög næs gaur. Ef ég ætti að flokka hann sem eitthvað, þá væri það "nörd" án efa. Hann er að læra "actuarial science" sem er einhvers konar stærðfræði tengt tölfræði, tryggingum eða fjármálum. Hann er á þriðja ári (af fjórum) og hefur áður verið á svona heimavist.

Hann kom alls ekki óundirbúinn og kom með fullt af dóti. Þar má nefna lítinn ísskáp, massaða borðtölvu og tvo skjái ásamt fleiru.

Dylan's setup


YES COKE YES

Enginn bjór samt, allt slíkt harðbannað á heimavistunum
3. Annað

   a. Annar atburður sem ég fór á ásamt nokkrum Asískum vinkonum (Japan, Kórea (suður) og Kína) var     bingó! Yeah. Það var svít. Það þekkja allir bingó. Unnum samt ekki neitt, enda er lífið og bingó líka lotterí.

BINGO

BINGO
Þetta eru samt ekki myndir af þeim. En það er eina slíka að finna á feisbók.

   b. Örlítið um næturlífið. Ég er alls ekkert partíljón (ennþá allavega) en ég og nokkrir af evrópuliðinu (Svíþjóð, Danmörk, Holland, Þýskaland, Bretland, Spánn) fórum niður í bæ á þriðjudaginn. Þau hafa síðan þá farið nokkrum sinnum en ekki ég (partí partí). En þetta kvöld þá var allt vitlaust niður í bæ á þessum eina stað sem var okkar annar viðkomustaður. Þar kostuðu allir drykkir 1 dollara. Já, 1 dollara. 1+1=2 og það var troðfullt á staðnum. Stelpur og strákar að dansa eins og í tónlistarmyndböndum, þetta er áhugavert stöff. Það verður allavega seint sagt að Ameríkanar (allavega Iowa-búar) kunni ekki að rokka klúbbmenninguna.

[ENGAR MYNDIR SORRY]

   c. Í lokin eru bara nokkrar myndir sem ég tók með lélegu farsímamyndavélinni minni á leið frá Kinnick Stadium um kvöld :)

Iowa River


Ég myndi segja að það væri bara nokkuð fallegt hérna í Iowa

- Matthías, Iowa City, 08/24/2013

Tuesday, August 20, 2013

Fyrstu þrír dagarnir

Hæ.

Í ljósi þess að ég hef greinilega mikinn tíma þessa fyrstu vikuna þá hef ég ákveðið að skrifa lítillega um ferðir mínar í Iowa borg í Iowa fylki. Til að auðvelda lestur, hef ég skipt þessum skriftum í þrjá flokka:

  1. Ferðalagið til Iowa
  2. Herbergið og aðstæður
  3. Fólkið hér

1. Ferðalagið til Iowa

Það er nú kannski ekki frá miklu áhugaverðu að segja, en ég skal rita eitthvað niður.

Ferðin tók allt í allt ca. 26.5 klukkustundir. Ég vaknaði um 07:30 AM að staðartíma þann 17. ágúst og fékk far með mömmu á Keflavíkurflugvöll. Þaðan var ferðinni heitið beinustu leið til New York með Icelandair. Þar sat ég við hliðina á konu á miðjum aldri sem var frá New York fylkinu og var að pirrast lítillega yfir því, eftir að ég kom því út úr mér að ég héldi að það væri bara borg, að meira að segja fólk í Bandaríkjunum héldi að New York væri bara stórborg. Það gekk nokkuð hnökralaust alla leiðina að finna réttu flugbrautirnar og staðina til að tékka mig inn og slíkt.
Frá New York var ferðinni heitið til Chicago með American Airlines. Þaðan fór ég til Cedar Rapids sem er borg í um 45 mínútna fjarlægð á bíl frá Iowa City. Ég var kominn til Cedar Rapids um 10:00 PM að staðartíma þann 17. ágúst (klukkan um 04:00 AM á Íslandi). Fékk far til Iowa City með Airport Shuttle Bus og gisti á hóteli fyrstu nóttina. Mér hugnaðist ekki að taka myndir af hótelherberginu, en það var allt of stórt fyrir mig, með king-size rúmi. Líkast til vegna þess að ég pantaði herbergið svo seint að það var ekki annað í boði. Kostaði samt bara rúmlega 10000 kr. Læt fylgja með myndir af útsýninu út um gluggann (í gegnum skordýranet auðvitað). Mér finnst alveg nokkuð fallegt hérna, það liggur á (Iowa River) í gegnum borgina miðja. Trén og gróðurinn kúl. Síðan má ekki gleyma kribbunum og engisprettunum. Þær eru snilld, meira að segja núna heyri ég í þeim út um gluggann á heimavistinni minni.
Útsýnið yfir Iowa river úr hótelherberginu
Morguninn 18. ágúst vaknaði ég og þurfti að drífa mig í leigubíl til heimavistarinnar minnar, Currier Residence Hall, til að flytja inn. Það gekk mjög vel fyrir sig.

2. Herbergið og aðstæður

Það er skyldumæting þessa fyrstu viku fyrir alla alþjóðlega nema hér við skólann. Flestir amerísku nemarnir flytja inn næsta laugardag og síðar og síðan byrja tímarnir í næstu viku, á mánudag, 26. ágúst 2013. Þannig að það verður áhugavert. Dylan herbergisfélagi minn flytur síðan að öllum líkindum inn í herbergið okkar á laugardagsmorgun. Ég læt fylgja hér myndir af herberginu, þetta er tveggja manna herbergi með loftháum rúmum sitt hvorum megin í herberginu. Bíómyndastemning.

Rúmið mitt, óumbúið

Rúmið hans Dylan

Herbergið, í mynd er m.a. hitari og loftkæling sem þarf að vera við gluggann því þetta er svo gamalt hús (á Bandarískan mælikvarða) að það eru engir loftræstistokkar

Vaskur í herberginu, hér er vatnið drykkjarhæft, en Iowa borgarbúar þurfa samt að hreinsa það ansi mikið því að vatnið hér er víst mengað af landbúnaðinum (dýrasaur og slíkt)

Það eru tveir svona skápar í herberginu
Á háskólasvæðinu eru um 5-10 "residence halls". Sá sem ég er í heitir Currier og er nokkuð gamall miðað við hina. Co-ed, sem þýðir að á minni hæð eru bæði stelpur og strákar, sem mér finnst skemmtilegt. Mér skilst líka að margir "returning students" kjósi að koma hingað sem er gott fyrir mig því að þá er ég nær þeim í aldri. Ég hef hitt eina manneskju sem er eldri en 21 og sú er frá Danmörku... skjalfesti hér að ég er 22 ára. Aldurinn til drykkju hér er 21 árs, þannig að ég hugsa að meirihluti nemanna hér megi ekki drekka löglega. Þeir segja að ansi hart sé tekið á drykkjulögbrotum (ætti ekki að vera vandamál fyrir mig) en ég á eftir að sjá hversu mikið er til í því. Þeir sem eru undir 21 mega vera inn á börum og slíkum stöðum þangað til klukkan verður 10:00 PM og þá kemur löggan og hendir þeim út hef ég heyrt.

Til þess að fara á klósettið og í sturtu þarf ég að fara út úr herberginu. Það vill svo til að það er klósett um 2 metra frá herberginu mínu sem ég hugsa að verði þægilegt. Sem betur fer þarf ég ekki að borga fyrir klósettpappír eða sápu fyrir hendur sérstaklega eins og ég hélt upprunalega. Sturturnar eru í sér klefum sem hægt er að læsa með eins hurðum og týpísk klósett. Læt fylgja myndir af ganginum hér í Currier séð frá herberginu mínu.

Til vinstri


Til hægri
Það er net hérna frítt, og ég þarf ekki að borga fyrir vatn eða rafmagn. Eða við skulum segja að ég borgi nú þegar fyrir það með húsnæðisgjöldunum. Fyrst að ég flyt inn viku á undan tilsettum tíma þarf ég að borga fyrir hverja nótt og að auki eitthvað fyrir matinn. Ég hugsa að ég verði með svokallað "unlimited swipes meal plan" sem gerir það að verkum að ég get borðað eins mikið og ég vil á tímum sem er opið. Það þýðir í grundvallaratriðum að ég verði líkast til að borða morgunmat, hádegismat og kvöldmat. Ég held að kaffiterían hér sé með svipuðu móti og annars staðar í Bandaríkjunum. Mér finnst hún frekar svít, þetta er svolítið eins og að geta borðað eins og maður vill á Stjörnutorgi í Kringlunni. Ætla að passa mig að borða samt ekki bara pítsu í hvert mál, því að maturinn hérna er nógu sveittur og "greasy" fyrir. En það er mikið úrval líka af heilsusamlegum mat og svo er morgunkorn og margt fleira.

3. Fólkið hér

Það voru um 3000 alþjóðlegir nemar hér í fyrra, og ég hugsa að það sé að aukast ef eitthvað. Fyrsta daginn (sunnudagur) var svona kynning fyrir alla alþjóðlegu nemana (Undergraduate). Á þeirri kynningu spurði fyrirlesarinn fólk hvaðan það væri og gæti ég nefnt lönd eins og: Indland, Kína, Kórea, Japan, Danmörk, Ástralía, Svíþjóð, Bretland og fleira. Langflestir frá Kína. Salurinn var nánast fullur af Kínverjum. Það voru lítilsháttar verðlaun (nammi) fyrir nokkra einstaklinga. Konan sem hélt fyrirlesturinn lét son sinn fara með litla öskju til þeirra sem "unnu". Fyrsta spurningin sem hún spyr er: "Is there anyone here who thinks they are the only one from their country?" Ég, nokkuð viss um að vera sá eini frá Íslandi, hrópa "Iceland!". Enginn annar þaðan, þannig að strákurinn hleypur til mín með "verðlaunin". Síðan biður fyrirlesarinn mig að standa upp. Ég stend upp (frekar framarlega), sný mér við og veifa fullum sal af Kínverjum á meðan það er klappað. Allar götur síðan hef ég verið þekktur sem "that guy from Iceland". Ég get ekki sagt að það hafi ekki fært mér lukku hingað til allavega, enda hefur fólk (aðallega stelpur) komið upp að mér og sagt: "Hi aren't you that guy from Iceland?" (eða Icerand, eins og Kínverjarnir segja). Þetta er klárlega eitthvað nýtt, en það er greinilega eitthvað heillandi í þeirra augum að vera frá landi svona langt í burtu og litlu. Eins og ég hugsa að margir íslenskir ferðamenn hafa heyrt, þá eru algengustu viðbrögðin við því að vera frá Íslandi: "WOW ICELAND THAT'S SO COOL" (ég efast um að fólk sé að meina "cool" í hitastigs-merkingunni.

Mér finnst almennt allir vera mjög vinalegir hér, bæði starfsfólkið, íbúarnir og alþjóðlegu nemarnir. Fólk er hvatt til að vera opið og reyna að kynnast fólki, sem mér finnst sniðugt, enda flestir á sama báti að vera einir eða að þekkja fáa hér.

Mér fannst frekar gaman þegar ég var að tala við nokkra RA's (resident assistants, fólk sem vinnur við það að hjálpa fólki hér, og býr hérna líka og eru nemendur, og skipuleggur atburði o.fl.) og lét það út úr mér að klósettið væri ca. 2 metra frá herberginu mínu. Þegar ég var að labba út heyrði ég lágt fliss. Fattaði hvað var í gangi og kallaði til baka "or 6 feet or whatever". Þetta tylftakerfi er náttúrulega alveg magnað fyrirbæri.

Til að taka saman, myndi ég segja að hvað varðar Iowa City og the University of Iowa, þá segi ég bara "so far so good".

Í lokin læt ég fylgja nokkrar myndir af broti af torgi þarna sem kallað er "The Pentacrest" sem inniheldur einhverjar 5 sögufrægar byggingar. Fyrir áhugasama þýðir "penta" fimm.


Iowa Old Capitol Building
- Matthías, Iowa City, haust 2013