Saturday, August 24, 2013

Kinnick Stadium, herbergisfélaginn o.fl.

Long time no blog. Djók.

Ég hugsa að ég bloggi ekki mikið þegar skólinn byrjar, nota þetta blogg kannski aðallega til að henda inn einhverjum myndum sem ég tek af einhverju og skrifa eitthvað smá um það til að losna við þær.

Efnisyfirlit:
1. Kinnick Stadium
2. Herbergisfélaginn
3. Annað

1. Kinnick Stadium

Eins og allir vita eru allir Ameríkanar mikið fyrir Amerískan fótbolta. Iowa háskólinn heldur úti svona ýmsum atburðum og dóti svona fyrstu vikuna aðallega fyrir nýnemana. Transfer stúdentar og skiptinemar fá svona að mestu leyti að fljóta með í því og fá að mæta á alla atburðina sem þeir vilja. Einn atburðurinn var "Kinnick Stadium Kickoff" þar sem farið var með alla á svokallað Kinnick Stadium sem er fótboltavöllur. Þar var öllum nýnemunum smalað saman til að mynda risastórt I. Síðan voru æfð lög og húrrahróp fyrir Iowa Hawkeyes sem er íþróttafélagið í þessum skóla. Þið þekkið þetta úr bíómyndunum, það er "mascot" sem heitir Herky the Hawk og það voru klappstýrur í snípsíðum pilsum með pom poms ásamt gæja í búningi sem lék Herky the Hawk og síðan var marching band með risastórum túbum (ekki svona venjulegum tónleikatúbum). Þetta var alveg áhugavert að sjá.


Kinnick Stadium, sést glitta í logo mascotsins efst, Herky the Hawk

Eitthvað segir mér að miðar í stúkurnar þarna efst kosti ansi mikinn pening



Þarna sést aftan á uppblásna útgáfu Herky og fleira, m.a. hinar margumræddu klappstýrur

Mynd tekin frá Iowa síðunni. Allir nýnemarnir, transfer og skiptinemarnir mynduðu I sem stendur fyrir hvað?
Ef þið eruð að velta því fyrir ykkur af hverju ég er uppi í stúkunni en ekki niðri hjá öllum nýnemunum, þá er það vegna þess að skiptinemar og transfer students fá ekki alveg sömu móttökurnar. Skiljanlega, þeir eru ekki endilega að fara að vera hérna í 4 ár. Við fengum líka svarta boli en ekki gula. Við erum samt á myndinni með stóra I-inu.

2. Herbergisfélaginn

Dylan, herbergisfélagi minn var að flytja inn núna í morgun. Hann býr í Cedar Rapids sem er borg ekki langt frá. Hann lítur út fyrir að vera mjög næs gaur. Ef ég ætti að flokka hann sem eitthvað, þá væri það "nörd" án efa. Hann er að læra "actuarial science" sem er einhvers konar stærðfræði tengt tölfræði, tryggingum eða fjármálum. Hann er á þriðja ári (af fjórum) og hefur áður verið á svona heimavist.

Hann kom alls ekki óundirbúinn og kom með fullt af dóti. Þar má nefna lítinn ísskáp, massaða borðtölvu og tvo skjái ásamt fleiru.

Dylan's setup


YES COKE YES

Enginn bjór samt, allt slíkt harðbannað á heimavistunum
3. Annað

   a. Annar atburður sem ég fór á ásamt nokkrum Asískum vinkonum (Japan, Kórea (suður) og Kína) var     bingó! Yeah. Það var svít. Það þekkja allir bingó. Unnum samt ekki neitt, enda er lífið og bingó líka lotterí.

BINGO

BINGO
Þetta eru samt ekki myndir af þeim. En það er eina slíka að finna á feisbók.

   b. Örlítið um næturlífið. Ég er alls ekkert partíljón (ennþá allavega) en ég og nokkrir af evrópuliðinu (Svíþjóð, Danmörk, Holland, Þýskaland, Bretland, Spánn) fórum niður í bæ á þriðjudaginn. Þau hafa síðan þá farið nokkrum sinnum en ekki ég (partí partí). En þetta kvöld þá var allt vitlaust niður í bæ á þessum eina stað sem var okkar annar viðkomustaður. Þar kostuðu allir drykkir 1 dollara. Já, 1 dollara. 1+1=2 og það var troðfullt á staðnum. Stelpur og strákar að dansa eins og í tónlistarmyndböndum, þetta er áhugavert stöff. Það verður allavega seint sagt að Ameríkanar (allavega Iowa-búar) kunni ekki að rokka klúbbmenninguna.

[ENGAR MYNDIR SORRY]

   c. Í lokin eru bara nokkrar myndir sem ég tók með lélegu farsímamyndavélinni minni á leið frá Kinnick Stadium um kvöld :)

Iowa River


Ég myndi segja að það væri bara nokkuð fallegt hérna í Iowa

- Matthías, Iowa City, 08/24/2013

1 comment:

  1. Skemmtilegt blogg, þetta er greinilega allt einsog það á að vera, eða allt eins og ameríkanarnir vilja hafa það.
    Pabbi

    ReplyDelete