Thursday, October 10, 2013

Myndadump #4




Það sést reyndar ekki nema vel sé að gáð (og allsgáð), en það eru þrír litlir fuglar sem slaka á á grindverkinu.

Bragðast eins og munnskol. Mjög gott!

Það var svokölluð "homecoming parade". Eða heimkomuskrúðgangan. Ekkert mjög ósvipað skrúðgöngum hér, lúðrasveit og alles.


og maður í tannburstabúning...
 
Þarna var ég mjög ánægður með að sjá asna í fyrsta sinn! Síðan kemst ég að því að asnar eru mun stærri og þetta eru líklega einhvers konar smáhestar. Ég hefði bara þurft spegil.




Americuhhhh 




Það verður sko ekki látið nægja minna en tvær myndir af McDonalds bílnum.


Jebb, íkornahnetur! Ætti kannski að heita "íkorn".


Ekki mikið um þetta á Íslandi... lestin fer reyndar örsjaldan í gegnum bæinn, og þegar hún gerir það keyrir hún mjög hægt. Ég hef aldrei séð hana.


Fyrsta verklega tilraunin í áfanganum Wireless Sensor Networks. Ekkert rosa spennó... samt fínt. Stilla útvarp sem sendir í sífellu sama merkið og nema styrk merkisins við mismunandi fjarlægðir/hæðir og reyna að sjá hvernig það passar við módelið sem miðar við eina line-of-sight bylgju og aðra ground reflection bylgju.
Alltaf gaman að nota spectrum analyser samt... þarna sýnir hann dBm (loksins lærir maður eitthvað almennilega á þessi fjandans desíbel sem hafa vafist fyrir manni síðan maður sá þau fyrst.) sem þýðir decibel yfir milliwatt. Þ.e. hversu mikið meira er þetta heldur en 1 mW. Á þessari mynd sjást truflanirnar vegna "noise" vel, á næstu mynd sést hvaða áhrif "averaging" hefur.

Að taka meðaltalið yfir (hér 70) mælingar minnkar áhrif "noise" (því að meðaltali er "noise" 0, það er kannski á bilinu +-1 t.d. og alveg handahófskennt). Eins og er augljóst fyrir mörgum.


Þarna sést fallegt útsýni yfir Iowa ána ásamt stöfunum Iowa City upplýstum á fallegum steinvegg. Nei bíddu... myndavélin mín ræður ekki við þetta lítið ljós.

Ok... bannað að reykja í strætó, ok bannað að borða í strætó og ok bannað að... WTF hvað í ósköpunum táknar þetta lengst til hægri? Bannað að vera með útvarp? bannað að vera með sína eigin loftkælingu? Svör óskast.

Alltaf töff að hafa ár (ég hef 22).

Dominos hér líka. JEOH (not really). Þarf að tékka hvort það bragðist öðruvísi, ég ætla að skjóta á já.

Ef mjög mjög mjög vel er að gáð sést mjög fallegur lítill fugl með vínrautt stél. Nema að þetta sé bara mold... en hann var þarna einhvers staðar þegar ég tók myndina.



Tilvalið að enda þetta á tveimur brunahanamyndum. Ég ætlaði að gera rosa flotta seríu því mér fannst þeir vera í svo mörgum litum. Kemur í ljós að þeir eru bara annað hvort rauðir eða gulir...



- Matthías, Iowa City, 10/10/2013

6 comments:

  1. Like á pun-in ... og myndirnar

    ReplyDelete
  2. kannski er bannað að vera með illa loftræstitækið úr Leitinni miklu (aka The Brave little Toaster). Það finnst mér líklegasta skýringin.

    ReplyDelete
  3. Læk á pun-in líka. Er þetta ekki útvarpstæki, er ekki bannað að vera með transitor útvarp í gangi í strætó?

    Er þetta enn þá allt myndir á símann??

    ReplyDelete
    Replies
    1. Þetta eru enn allt myndir á símann!

      Delete
    2. OK, koma bara skratti vel út sumar miðað við það :-)

      Delete