Hey.
Lögðum af stað frá Iowa City snemma morguns þann 3. janúar 2014. Keyrðum í gegnum Kansas og til Amarillo, Texas (we were not in Kansas anymore). Þar gistum við í bílnum, sem hefði verið ágætt ef það hefði ekki verið svona skuggalega kalt. Keyrðum síðan til Albuquerque, New Mexico og þaðan til Flagstaff, Arizona. Þar gistum við og lögðum síðan af stað 5. janúar til Miklagils (Grand Canyon). Arizona er virkilega fallegt pleis (allavega norður-Arizona, suður Arizona er örugglega líka fallegt, meiri eyðimörk þar og kaktusar), tré og fjöll svo langt sem augað eygir. Það sem þessi ferð hefur án efa kennt mér er að það er rosalega mikið af engu í Ameríku. Endalausar víðáttur þar sem enginn býr og ekkert er. Maður er líka að átta sig á því að hlutirnir hér eru mjög ódýrir ef maður á bíl og veit hvert á að fara.
 |
| New Mexico held ég |
 |
| eitthvað svít pleis rétt hjá Amarillo, Texas, þar sem einhverjum datt í hug að grafa fullt af Cadillacs. Síðan eru fullt af spreybrúsum þarna og fólk kemur þarna og spreyjar á bílana. |
 |
| ekkert |
 |
| New Mexico held ég |
 |
| Arizona. Ég reyndi að taka fullt af myndum en nennti ekki alltaf að fara úr bílnum, þannig að þær tókust misvel. Það er samt virkilega fallegt í Arizona. |
 |
| Kýr í Arizona. |
 |
| Úr fókus í Arizona. |
 |
| Skítugur gluggi í Arizona. |
 |
| Tré í Arizona. |
 |
| Meiri tré í Arizona. |
 |
| Lest í Arizona. |
 |
| Fjöll í Arizona. |
Sáum Miklagil og það var mjög Grand.
 |
| maaaaaaaaður |
 |
| svo gaman að sjá Miklagil |
Síðan auðvitað bilaði bíllinn þegar við erum í einhverjum pínulitlum bæ við Interstate 40, Williams í Arizona. Þurftum að breyta plönum okkar um að fara til Vegas strax. Enn er óvíst hvað verður, þurfum að bíða til morguns með að tékka á bílnum. Útlitið er ekki mjög bjart, vélin gæti verið biluð. Við sjáum hvað setur, þangað til verður bara litið á björtu hliðarnar, það er virkilega fallegt hérna.
- Matthías, Williams, Arizona, 01/05/2013
Allt svo svaka stórt í henni Ameríku, vona samt að bíllinn hafi komist í lag og það hafi ekki verið neitt stórt að honum.
ReplyDelete