JÁ
það er búið að vera ansi mikið að gera, það er ekkert frí að ferðast svona mikið. Allavega ekki í þeim skilningi að frí sé slökun. Þannig að í dag verður þetta meira svona orðstutt en myndgott.
Fór til New York. Það var stuð, sáum Times Square, Wall Street, Rockafeller Center, Empire State, Central Park, Brooklyn Bridge, Statue of Liberty, Chinatown (óvart), Museum of Natural History, o.fl.
Fyrir þá sem ekki átta sig á því, er New York ólíkt Íslandi og Iowa að því leyti að þar er mikið af háum byggingum.
Jól í NY voru spes, að borða indverskan mat í jólamat (mjög góður matur) var áhugavert.
 |
| Útsýnið af 7. hæð á hótelinu. Friends? |
 |
| Central Park |
 |
| Ekki slæmt. |
 |
| oh ó |
 |
| Fyrir þá sem hafa horft á þá gæðaþætti Walking with Dinasours frá BBC... |
 |
| En ekki hvað? |
 |
| wait for it |
 |
| ... |
 |
| Times square!!! |
 |
| manni verður hálfóglatt |
 |
| Minningarvarði um 9/11, WTC |
 |
| Eina tréð sem lifði af 9/11. Því var hjúkrað til heilsu eftir 9/11, "survivor tree". Einhverju síðar lenti það í hrikalegum stormi en stóð undir nafni og lifði af. |
 |
| Empire State |
 |
| For libertyyyy!!!! Hún er minni en ég hélt. |
 |
| Lentum óvart í Chinatown þegar við vorum að reyna að fara eitthvert annað, Brooklyn Bridge held ég. |
 |
| Brooklyn, err fólk bridge. |
 |
| skautasvell á Rockafeller Center |
 |
| bra |
 |
| Svartur með sólgleraugu að spila á saxófón. |
 |
| gleraugun... |
 |
| Central Park |
Fer síðan til Kaliforníu bílandi að öllum líkindum. Leggjum af stað fljótlega og verðum í ca. 2 vikur á ferðinni. Keyrum hring sem byrjar í Iowa, fer yfir Bandaríkin til Kaliforníu og svo til baka aðra leið. Get ekki sagt annað en að maður sé spenntur. Mögulegir stoppustaðir eru: Las Vegas, Grand Canyon,
Yosemite National Park, San Fransisco, Los Angeles svo eitthvað sé nefnt.
Annars hef ég það bara gott.
 |
| Alltaf gaman að fá heimsendingar að heiman. |
 |
| wat |
 |
| Ísilögð áin í Æóa. |
 |
| Ef einhver man eftir myndinni sem hér kemur á eftir, þá held ég að öruggt sé að álykta hvað táknið lengst til hægri þýðir: engir ghettoblasterar takk fyrir. |
 |
| Burriiiiiiiito |
 |
| Fór að skauta með einstaklingum frá Afríku og Dubai. Ég er ekki mjög góður á skauta (hef farið kannski 5x) en í samanburði var ég eins og listdansari. |
 |
| Það vantar meira morgunkornsúrval á Íslandi, klárlega. |
 |
| FYRIR: Jólagjöf frá Brynjari, einhvers konar segulmagnað mauk. Það laðast að seglinum |
 |
| EFTIR: Eftir eina nótt var þetta niðurstaðan án þess að ég snerti þetta. |
- Matthías, Iowa City, 01/02/2013
Segulmagnað mauk, já. Einmitt það sem ég vissi ekki að mig vantaði á heimilið.
ReplyDelete