Hæ.
Það næsta sem ég hef komist því að hitta Íslending hér í landi hinna frjálsu gerðist í dag.
Gegnum vinkonu mína hérna, hitti ég mann sem fæddist á Íslandi, á bandaríska foreldra (voru á Íslandi út af hernum) og flutti mjög fljótlega aftur til Bandaríkjanna. Hann var síðast á Íslandi síðustu önn í nákvæmlega sama prógrammi og ég er í hér. Semsagt skiptinemi frá Iowa sem fór til Reykjavíkur í Háskóla Íslands.
Mjög gaman að geta talað íslensku augliti til auglitis, þó að auðvitað sé íslenskan hans ekki reiprennandi, en mér þykir mikið til koma hversu mikið hann kann, sérstaklega miðað við að hann virðist hafa lært það allt nánast sjálfur (foreldrar hans tala ekki íslensku).
Haha, líka gaman að heyra að hann hafi verið fullur á Harlem og Dollý.
Kveðja,
Einn ánægður Íslendingur í Bandaríkjunum
Skemmtilegt Matti, verra að vita ekki, hafa ekki hugmynd um, hvaða staðir þetta eru, þeir Harlem og Dollý.
ReplyDeletestaðir á Íslandi endast ekkert. Þar sem Harlem er, var áður Þýski barinn og þar áður Bakkus og þar áður man ég ekki.
ReplyDelete