Saturday, April 19, 2014

Síðasta bloggið?

Hæ.

Þetta gæti orðið síðasta bloggið. Nú fer ég heim eftir mánuð, og sé ekki fram á að gera margt fréttnæmt þangað til. Læra, fara í próf og fljúga heim ef gæfan gefur. Hef reyndar svolítið verið að pæla í því að stofna kannski blogg ótengt þessu ferðaveseni mínu, þar sem ég get viðrað mínar pælingar með hugsanlega einhverjum öðrum en 0 og 1.

Annars hlakka ég mikið mikið til að komast loksins loksins heim! Held að fílingurinn verði svipað og í Múmínálfamyndinni þegar snorkstrákurinn kallar: "Hafið! Hafið er komið aftur!"

Campus.

ójá, þetta er íkorni

ákvað að losa mig við gítarinn fyrst ég er að fara heim, ákvað að gefa hann, afhending fljótlega
Sá þennan fína disk og var óneitanlega hugsað til mömmu

Tók að sjálfsögðu mynd af framleiðandanum án þess að hugsa, sé síðan núna að þetta er nú ekki merkilegra en svo að vera frá 2013...

Afsakanir afsakanir. Planið (alltaf pönn intenndid þegar sagt í stærðfræðilegu samhengi) var a) að hafa ekki þetta surface mount (hlakka ekki til að reyna að lóða það) og b) að hafa power plane (ground plane). Það var smá misskilningur og við létum byggja eldri útgáfu af hönnuninni. Frekar kúl samt, bara hægt að láta rafverslunina í skólanum hafa hönnunina, og þeir búa þetta til (ekki frítt). Þeir sögðu mér að þetta hefði verið allt kopar sem síðan er tekið í burtu í einhverri vél, sem held ég hálfpússar hann bara í burtu (engin sýra í þetta skiptið).

Ah. Gott að fá smá súkkulaði að heiman. Í tilefni Föstudagsins langa fékk ég mér eitt, eða "Good Friday". 

Ákvað að skella mér að skoða Maquoketa hellana með einhverju internasíonal krádi. Fór á þessum í hellana....

jebb það voru hellar.


og gott veður... sorrí Ísland og snjór



Svo spennandi.

Einhver mjög furðuleg tré "stick trees" er einhvers konar óformlegt heiti. Lítur svolítið út eins og einhver hafi troðið spýtum í annars venjulegra tré.



Iowa er ansi mikið bara akrar og akrar (ekki skal rugla saman ökrum og ensku mælieiningunni "acres", þó að líklega sé þetta skylt, og bæ ðe bæ, 1 acre = 4000 fermetrar).


- Matthías, Iowa City, Iowa, 04/19/2014

4 comments:

  1. Var það ekki múmínsnáðinn? Vinkona hans var snorkstelpan, hún var með hring um ökklann.
    Þetta tré er stórundarlegt annars, aldrei séð svona.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Jú múmínsnáðinn var það! Þakka þér fyrir. Maður er ekki alveg með öll heitin á hreinu.
      Snúður, morrinn, bísamrottan, hattífattarnir, mía og fleira

      Delete
  2. Skemmtilegt vídeó Matti en maður fær smá hálsríg :-)

    ReplyDelete
  3. This comment has been removed by the author.

    ReplyDelete