Í ljósi þess að ég hef greinilega mikinn tíma þessa fyrstu vikuna þá hef ég ákveðið að skrifa lítillega um ferðir mínar í Iowa borg í Iowa fylki. Til að auðvelda lestur, hef ég skipt þessum skriftum í þrjá flokka:
- Ferðalagið til Iowa
- Herbergið og aðstæður
- Fólkið hér
1. Ferðalagið til Iowa
Það er nú kannski ekki frá miklu áhugaverðu að segja, en ég skal rita eitthvað niður.
Ferðin tók allt í allt ca. 26.5 klukkustundir. Ég vaknaði um 07:30 AM að staðartíma þann 17. ágúst og fékk far með mömmu á Keflavíkurflugvöll. Þaðan var ferðinni heitið beinustu leið til New York með Icelandair. Þar sat ég við hliðina á konu á miðjum aldri sem var frá New York fylkinu og var að pirrast lítillega yfir því, eftir að ég kom því út úr mér að ég héldi að það væri bara borg, að meira að segja fólk í Bandaríkjunum héldi að New York væri bara stórborg. Það gekk nokkuð hnökralaust alla leiðina að finna réttu flugbrautirnar og staðina til að tékka mig inn og slíkt.
Frá New York var ferðinni heitið til Chicago með American Airlines. Þaðan fór ég til Cedar Rapids sem er borg í um 45 mínútna fjarlægð á bíl frá Iowa City. Ég var kominn til Cedar Rapids um 10:00 PM að staðartíma þann 17. ágúst (klukkan um 04:00 AM á Íslandi). Fékk far til Iowa City með Airport Shuttle Bus og gisti á hóteli fyrstu nóttina. Mér hugnaðist ekki að taka myndir af hótelherberginu, en það var allt of stórt fyrir mig, með king-size rúmi. Líkast til vegna þess að ég pantaði herbergið svo seint að það var ekki annað í boði. Kostaði samt bara rúmlega 10000 kr. Læt fylgja með myndir af útsýninu út um gluggann (í gegnum skordýranet auðvitað). Mér finnst alveg nokkuð fallegt hérna, það liggur á (Iowa River) í gegnum borgina miðja. Trén og gróðurinn kúl. Síðan má ekki gleyma kribbunum og engisprettunum. Þær eru snilld, meira að segja núna heyri ég í þeim út um gluggann á heimavistinni minni.
| Útsýnið yfir Iowa river úr hótelherberginu |
2. Herbergið og aðstæður
Það er skyldumæting þessa fyrstu viku fyrir alla alþjóðlega nema hér við skólann. Flestir amerísku nemarnir flytja inn næsta laugardag og síðar og síðan byrja tímarnir í næstu viku, á mánudag, 26. ágúst 2013. Þannig að það verður áhugavert. Dylan herbergisfélagi minn flytur síðan að öllum líkindum inn í herbergið okkar á laugardagsmorgun. Ég læt fylgja hér myndir af herberginu, þetta er tveggja manna herbergi með loftháum rúmum sitt hvorum megin í herberginu. Bíómyndastemning.
| Rúmið mitt, óumbúið |
| Rúmið hans Dylan |
| Herbergið, í mynd er m.a. hitari og loftkæling sem þarf að vera við gluggann því þetta er svo gamalt hús (á Bandarískan mælikvarða) að það eru engir loftræstistokkar |
| Vaskur í herberginu, hér er vatnið drykkjarhæft, en Iowa borgarbúar þurfa samt að hreinsa það ansi mikið því að vatnið hér er víst mengað af landbúnaðinum (dýrasaur og slíkt) |
| Það eru tveir svona skápar í herberginu |
Til þess að fara á klósettið og í sturtu þarf ég að fara út úr herberginu. Það vill svo til að það er klósett um 2 metra frá herberginu mínu sem ég hugsa að verði þægilegt. Sem betur fer þarf ég ekki að borga fyrir klósettpappír eða sápu fyrir hendur sérstaklega eins og ég hélt upprunalega. Sturturnar eru í sér klefum sem hægt er að læsa með eins hurðum og týpísk klósett. Læt fylgja myndir af ganginum hér í Currier séð frá herberginu mínu.
| Til vinstri |
| Til hægri |
3. Fólkið hér
Það voru um 3000 alþjóðlegir nemar hér í fyrra, og ég hugsa að það sé að aukast ef eitthvað. Fyrsta daginn (sunnudagur) var svona kynning fyrir alla alþjóðlegu nemana (Undergraduate). Á þeirri kynningu spurði fyrirlesarinn fólk hvaðan það væri og gæti ég nefnt lönd eins og: Indland, Kína, Kórea, Japan, Danmörk, Ástralía, Svíþjóð, Bretland og fleira. Langflestir frá Kína. Salurinn var nánast fullur af Kínverjum. Það voru lítilsháttar verðlaun (nammi) fyrir nokkra einstaklinga. Konan sem hélt fyrirlesturinn lét son sinn fara með litla öskju til þeirra sem "unnu". Fyrsta spurningin sem hún spyr er: "Is there anyone here who thinks they are the only one from their country?" Ég, nokkuð viss um að vera sá eini frá Íslandi, hrópa "Iceland!". Enginn annar þaðan, þannig að strákurinn hleypur til mín með "verðlaunin". Síðan biður fyrirlesarinn mig að standa upp. Ég stend upp (frekar framarlega), sný mér við og veifa fullum sal af Kínverjum á meðan það er klappað. Allar götur síðan hef ég verið þekktur sem "that guy from Iceland". Ég get ekki sagt að það hafi ekki fært mér lukku hingað til allavega, enda hefur fólk (aðallega stelpur) komið upp að mér og sagt: "Hi aren't you that guy from Iceland?" (eða Icerand, eins og Kínverjarnir segja). Þetta er klárlega eitthvað nýtt, en það er greinilega eitthvað heillandi í þeirra augum að vera frá landi svona langt í burtu og litlu. Eins og ég hugsa að margir íslenskir ferðamenn hafa heyrt, þá eru algengustu viðbrögðin við því að vera frá Íslandi: "WOW ICELAND THAT'S SO COOL" (ég efast um að fólk sé að meina "cool" í hitastigs-merkingunni.
Mér finnst almennt allir vera mjög vinalegir hér, bæði starfsfólkið, íbúarnir og alþjóðlegu nemarnir. Fólk er hvatt til að vera opið og reyna að kynnast fólki, sem mér finnst sniðugt, enda flestir á sama báti að vera einir eða að þekkja fáa hér.
Mér fannst frekar gaman þegar ég var að tala við nokkra RA's (resident assistants, fólk sem vinnur við það að hjálpa fólki hér, og býr hérna líka og eru nemendur, og skipuleggur atburði o.fl.) og lét það út úr mér að klósettið væri ca. 2 metra frá herberginu mínu. Þegar ég var að labba út heyrði ég lágt fliss. Fattaði hvað var í gangi og kallaði til baka "or 6 feet or whatever". Þetta tylftakerfi er náttúrulega alveg magnað fyrirbæri.
Til að taka saman, myndi ég segja að hvað varðar Iowa City og the University of Iowa, þá segi ég bara "so far so good".
Í lokin læt ég fylgja nokkrar myndir af broti af torgi þarna sem kallað er "The Pentacrest" sem inniheldur einhverjar 5 sögufrægar byggingar. Fyrir áhugasama þýðir "penta" fimm.
| Iowa Old Capitol Building |
Ég ætla að vera fyrst til að kommenta, bara til að vera fyrst til að kommenta.
ReplyDeleteÁfram Matti!
p.s. voðalega eru herbergin ponkulítil á þessari heimavist, þið herbergisfélagarnir verðið að sammælast um að fara framúr eftir ákveðinni áætlun til að forðast árekstur
go mamma!
DeleteKrefst þess að fá blogg lágmark einu sinni í viku :)
ReplyDelete