Sunday, September 1, 2013

Amerískur fótbolti, "tailgating" og rauð partíglös

Enn og aftur blogga ég til að losna samviskusamlega við þessar myndir sem ég tek af og til. Í þetta skipti verður greininni skipt í 3 hluta.

1. Amerískur fótbolti
2. "tailgating"
3. Rauð partíglös

1. Amerískur fótbolti

Þið þekkið þetta, það sem Ameríkanar kalla fótbolta köllum við amerískan fótbolta. Íþróttin þar sem gæjarnir eru með hjálma og rúgbíbolta og reyna að komast yfir völlinn og eru teknir niður og allir hrúgast ofan á þann sem heldur á boltanum. Ég fór á eitt stykki svona leik. Við skulum segja að minnsta kosti að það hafi verið áhugavert (ég sé mig ekki fyrir mér að stunda þetta mikið nema bara fyrir félagsskapinn). Þetta var víst svona nokkuð hófsamur leikur, ekkert mikið hatur þó að það hafi verið búað á andstæðingana, Northern Illinois Huskies sem btw unnu með 3 stigum á síðustu mínútunni (field goal).

Það sáust nokkrir rauðir flekkir á svæðinu þar sem Huskies aðdáendur sátu í sínum einkennislitum, rauðu og svörtu.





Kinnick Stadium

The marching band

Leikmennirnir andspænis hvor öðrum


Þetta var svokallaður "gold" leikur og þess vegna eru allir í gulli (gulu). Einkennislitir Iowa Hawkeyes eru svart og gull. Síðan er víst líka "black and gold" leikir þar sem norðurstúkan t.d. er svört, austur er gul, suður er svört og vestur er gul.

Það var rosalega heitt þarna. Leikurinn tók 3.5 klst og það var sem betur fer ekki sól allan tímann þökk sé nokkrum skýjum en þetta var ansi rosalegt. Þetta var víst svona nokkuð óvenjulega langur leikur, en þeir eru vanalega svona 2.5 klst.

Ef einhver hefur áhuga á reglunum, þá skildi ég þær ekki neitt áður en ég sá þennan leik, og skil svona pínulítið núna. Þetta er víst nokkuð flókið miðað við ýmislegt annað. En í grundvallaratriðum gengur þetta út á það að hvort lið hefur 4 tilraunir til að komast 10 "yards" sem er ca. 10 metrar með boltann. Og það fást 6-7 stig fyrir touchdown og 3 fyrir field goal (sparka boltanum í markið. Leiknum er skipt í 4 quarters sem eru 15 mínútur hver, en tíminn er mjög oft stoppaður og þess vegna tekur þetta svona langan tíma (+ hálfleikur).

Í lokin fylgir léleg upptaka af þulinum áður en leikur hófst. YEAH



2. "tailgating" (verb: Tailgate)

Þetta er hugtak sem ég hafði heyrt þónokkrum sinnum áður en ég vissi hvað þetta var. Ég hélt að þetta tengdist því að "take"-a bíla, þ.e. að hanga aftan í bílum.

Síðan sé ég að Wikipedia þýðir tailgating: Tailgating is the practice of driving on a road too close to a frontward vehicle, at a distance which does not guarantee that stopping to avoid collision is possible. Approximately one third of rear-end collisions involve tailgating.

Hins vegar er þetta allt annað tailgating. Þetta tailgating sem ég á við er þegar Ameríkanar hópast saman, fara út í góða veðrið, setja upp skyggni, grilla, spila leiki og umfram allt drekka áfengi. Þetta er með því amerískasta sem maður sér, fólk í íþróttalitum að drekka og spila leiki (t.d. risa Jenga sem var málað í einkennislitum Iowa Hawkeyes) og hópast saman ungir jafnt sem aldnir.

Þetta er eitthvað sem fólk hér stundar fyrir íþróttaleiki (allavega amerískan fótbolta). T.d. á laugardaginn þegar ég fór að sjá leikinn sem byrjaði 2:30 PM, þá var þetta tailgating byrjað kannski um 9 AM.

Það er vert að nefna að drykkja á almannafæri er bönnuð hér og ekki góð hugmynd (allavega ekki niður í bæ þar sem oft eru löggur (með skammbyssur...)). En varðandi tailgating er það ólöglegt en samt leyft, þ.e. löggan gerir ekkert í því nema að það sé eitthvað vesen. Þannig að þetta er ágætis venue fyrir drykkju undir aldri (21!!!!).

Ég tók því miður ekki mikið af myndum, en þetta ætti að gefa réttu hugmyndina


Enn síðar sé ég að þetta er það sem Wikipedia kallar Tailgate party: http://en.wikipedia.org/wiki/Tailgate_party

tailgate party is a social event held on and around the open tailgate of a vehicle.

3. Rauð partíglös

[biðst fyrirfram afsökunar á skorti á alvöru myndum af rauðum partíglösum]

Nú hefur líf mitt verið fullkomnað í fjórða sinn. Það fyrsta var þegar ég vann Guitar Hero III á expert. Annað skiptið var þegar ég smíðaði minn eigin synthesizer. Þriðja skiptið var þegar ég sá íkorna hlaupa eftir götunni með stóra hnetu í kjaftinum og klifra upp í tré. Fjórða skiptið var þegar ég fór í partí þar sem notuð eru RAUÐ PARTÍGLÖS eins og í öllum amerískum bíómyndum sem innihalda drykkju.

Tekið af vefnum, en þið kannist við þessi glös. Þau eru líka stundum blá.
Talandi um partíglös, þá sýnist mér Ameríkanar drekka ansi oft allavega, en bjórinn þeirra er svo þunnur að maður þarf að drekka mun meira af amerískum bjór heldur en evrópskum til að verða fullur. T.d. drakk ég á fimmtudaginn, föstudaginn, laugardagsmorgun (í tailgating, bara lítið samt) og laugardagskvöld (þá var hið margumrædda partí). En þó að ég hafi drukkið það sem flokkast sem mikið fyrir mig á fimmtud. og föstud. þá varð ég ekkert sérstaklega fullur (lifur, ertu sátt við þetta?). T.d. sýnist mér skotin þeirra hérna vera þynnri oft en skotin heima mörg hver.

Allt þetta hentar mér reyndar ágætlega sökum áfengisþols míns :)

Moral of the story: Þó að Ameríkani segi að hann drekki mikið, þá skaltu minnka það sem hann segist drekka um svona 25-50% og ákveða viðbrögð eftir því (þessum boðskap skal tekið með nokkrum grömmum af salti og/eða tequila)

Og talandi um íkorna.

Hvar er íkorninn?


Ég og íkorninn fórum í störukeppni í ca. 20 sekúndur áður en hann klifraði lengra upp í tréð :)

- Matthías, Iowa City, 09/01/2013

1 comment: