Monday, September 9, 2013

Af hverju?


Tvær fullyrðingar langar mig að nefna sem mér finnst sanna gildi sitt og sannleika síendurtekið.

a) Sumt lærir maður bara af eigin reynslu.
b) Maður áttar sig ekki á því hvað maður hefur fyrr en maður hefur misst það.

a)
Þetta ættu allir að þekkja. Mér finnst í raun fáránlega mikið af hlutum sem hentugt væri að geta lært af reynslu annarra en bara virkar ekki nema maður geri það sjálfur. Það getur verið til dæmis að brenna sig, að drekka sig of fullan, að særa einhvern, að stíga á LEGO kubba, að fara í stríð og það að nota smokk. Persónulega tel ég þetta vera eitt af því sem alvarlega aftrar þróun mannkyns í átt að tilvonandi betri heimi.

b)

Þetta ættu allir að þekkja. Þetta á því miður alltof oft við. Í núverandi samhengi á ég auðvitað við þá staðreynd sem virðist vera að fólk verður mun meira þjóðernissinnað þegar það fer af landi brott.


Sama hvar maður er fæddur og uppalinn þá er það alltaf staðurinn þar sem maður er fæddur og uppalinn. Rökrétt ekki satt? Það er ómögulegt að breyta því, sama þó að maður búi í Kína í 50 ár. Maður verður aldrei Kínverji (nema maður hafi verið þar upphaflega). Maður verður ávallt, í mínu tilfelli, Íslendingur.

Það sama á við um fjölskyldu, og eins og hefur marg oft verið sagt: Maður getur valið sér vini en ekki fjölskyldu.


Í raun eru liðir a og b tengdir. Maður lærir af reynslunni að missa eitthvað að meta það.


Þá kem ég að aðalviðfangsefni bloggsins að þessu sinni. Af hverju að gera eitthvað svona eins og ég er að gera? Maður hefur heyrt aftur og aftur, já þetta er frábær reynsla, víkkar sjóndeildarhringinn og svo framvegis. En hvað á fólk við þegar það segir að þetta víkki sjóndeildarhringinn eða sé frábær reynsla? Það sem ég hef alltaf ímyndað mér að það þýði er að maður verði umburðarlyndari og sjái fleiri hliðar á heiminum sem kristallast í því að maður hittir fólk frá öðrum heimshlutum. Góð reynsla gæti átt við það eða kannski að standa aðeins á eigin fótum eða eitthvað annað. Þetta gæti í raun átt við margt. Allt gott og blessað og ég get tekið undir það. En...

Það sem mér finnst vera helsti ávöxtur slíkrar farar (og kannski á einhver við þetta atriði þegar hann segir að þetta "víkki sjóndeildarhringinn") er að maður lærir betur að meta það sem maður hefur/hafði.

Lítil stæði fyrir mótorhjól!

Amerískt! Fullt af heftum og leifum af auglýsingum og gylliboðum

Myndavélin er ekki nálægt því að ná því hvað það er notalegt og fallegt þarna á næturna. Til dæmis að horfa yfir ána og hlusta á engispretturnar í kyrrðinni og hlýjunni.


Ég skil vel af hverju þetta náði ekki vinsældum á Íslandi

A.m.k. einn íkorna fyrir hvert blogg?

Trén hér eru falleg. Feitari og pattaralegri en trén á klakanum, skiljanlega.



Sniðugt spil. Mæli með því.

Mikið af húsunum eru með svona rauðum múrsteinum. Evrópskt?

All American Beef & Cheese

"Ekkert er eins og það var og hefur aldrei verið." - Mamma

"Allt er eins og það er og hefur aldrei verið." - Hvernig ég mundi þetta



- Matthías, Iowa City, 09/09/2013

6 comments:

  1. Það er semsagt hægt að taka Matta úr Íslandi, en ekki hægt að taka Ísland úr Matta...

    ReplyDelete
  2. Sakna þín, Matti minn, alveg voðalega. En það er sárabót að hafa Hjalta kallinn hérna. Á ég að senda þér sultulús og tvö krækiber?

    ReplyDelete
    Replies
    1. <3 Það væri alveg kúl, þá myndi ég kaupa brauð og geyma sultuna í ísskápnum hans Dylan.

      Delete
  3. Matti þú verður að skilja þetta!!!
    Þjóðernið er búið til af ríkinu til að draga úr stéttarvitund okkar til að réttlæta ríkjandi aðrán kapítalistana. Með þessu fá þeir okkkur til að lýta á okkar menningu og gildi sem betri heldur en annara þjóða og fá þá okkur í leiðini að réttlæta ríkjandi skipulag með lágum launum og miklri séttarskyptingu.
    Lifi bylltingin, Mcdondalds og Fruit loops :)

    ps. halltu áfram að skrifa svona pósta matti. þetta eru mjög skemmtilegar pælingar og einning myndirnar :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Mjög gaman að sjá að þú ert að lesa þetta Daði.

      Btw, ég er enn ekki búinn að fara á McDonalds!!! það kemur. Og dem, hvað Fruit Loops er gott!

      Hvað varðar áhugaverðu pælingarnar þínar, ég er ekki viss um að þetta sé svona svart og hvítt. Er ekki þjóðernið líka partur af því að lifa af sem þjóð, þrífast í þessum heimi, að standa saman? Gæti verið á kostnað réttlætis auðvitað.

      Delete