Jæja.
Ekkert mikið nýtt að frétta.
Sendi 3 bækur á vitlaust address (allavega fann UPS ekki út úr því). Vona að hinir sendarnir finni út úr því.
Komst að því að sumar menningar eru öðruvísi en aðrar.
Nú hefst dömpið:
 |
| Hér þarf ekkert caption. |
 |
| Iowa á á |
 |
| Eitthvað DJ svítness. Ég náði bara rétt lokunum, en hann spilaði allavega Zelda. |
 |
| Píanóið í Stanley Hall sem er samtengdur Currier (þar bý ég). Frekar flott herbergi með stórum gluggum sem sjá út. |
 |
| Stanley Hall Piano Room (mín nafngift) |
 |
| Eitthvað crazy party frá 5-7PM í kringum hús forseta skólans. Fólk að dansa og mascot-ið auðvitað og frír matur (hamborgarar aðallega!) |
 |
| Já. Ég hef bara séð KRÍTARTÖFLUR hér. Ég hélt að enginn notaði slíkt lengur. Þeim til varnar nota þeir meira osom projectorinn sem sjá má á næstu mynd og venjulega myndvarpa. |
 |
| Osom prjection frá projector sem glöggir geta giskað á hvað gerir. Kennarinn getur semsagt notað venjulegt blað (já hann þarf ekki glæru) og skrifað á það real-time og varpinn varpar því bara upp og stækkar. HÍ mætti alveg redda sér svona við tækifæri. |
 |
| Minnir þetta einhvern annan á það sem þetta minnir mig á í hvert skipti sem ég labba þarna framhjá? (alltaf þegar ég fer að borða) |
 |
| Ha? Rosalega er þetta óskýr mynd Matti. Hvað er í gangi? Já það er rétt, myndavélin ræður ekki við svona mikla SÓL. Hér er nefnilega SÓL í lok ágúst. Þetta er ótrúlegt. Lítill fugl sagði mér að það væri skítkalt á Íslandi. |
Og já, btw þá bjó ég til twitter. Einhver gaur sem ég þekki ekkert bað mig um að adda sér. Twitter er mikið tekið hér. #twitterfevermaybe
- Matthías, Iowa City, 08/28/2013
Myndavélin að svínvirka Matti.
ReplyDeleteJa, ég hef alveg notað hana. En allar þessar myndir voru teknar með 12.000 kr. Huawei farsímanum mínum :D Ástæðan er líkast til augljós; ég er ekki alltaf með myndavélina á mér. Á meðan það er svona heitt er maður oftast bara á tánum, í sandölum, buxum og stuttermabol :)
DeleteAha - Huawei it is :-)
ReplyDelete