1. Heimspekilegar pælingar og bull í mér
2. Skólinn hér só far
3. Myndadump #3
1. Heimspekilegar pælingar og bull í mér
Mér hefur þótt gaman að pæla í lífinu síðan fyrir svona tveimur árum. Ég hef öfundað heimspekinga (lesist: heimspekinema) að því leyti að þeir fá að vinna við það að pæla í lífinu, því sem fólk hefur gert í fortíðinni, því sem það gerir í nútíðinni og gæti gert í framtíðinni. Þetta er eitthvað sem ég fæ ekki gert nema utan vinnutíma. Ég man að ég hef hugsað: Hvernig er hægt að sóa lífinu í það að reyna að skilja það?
Augljós rök gegn því eru að við það að skilja lífið betur kemstu kannski að því að þú hefðir ekki átt að eyða því í að skilja það heldur að gera eitthvað annað sem nú er of seint. Ástæðan fyrir því að ég tek ekki undir það er hugsunarháttur minn, sem gengur út á það að ég sé ekki hvernig sá möguleiki er fyrir hendi að það að skilja eitthvað betur sé ekki gott. Verkfræðingurinn í mér kannski að tala, langar til að skilja sem flest.
Er það partur af aldrinum að pæla meira í lífinu? Ég held það. Ég man eftir samræðu við ónafngreint gamalmenni, þar sem spurningin var: Hver er tilgangurinn með þessu öllu? Svörin voru ekki mikil, en eitt sem ég tók eftir er að gamalmennið virtist vera með miklu meiri samkennd með heiminum öllum. Var meira að pæla í heildarmyndinni heldur en allavega ég; stríðum úti í heimi, hvernig mannkynið myndi spjara sig í framtíðinni, mannréttindamálum o.fl. Kannski einkennir það ungt fólk, að sjá ekki lengra en nefi sínu nær.
Það er kannski ekki bara það að ég er farinn frá eyjunni með vatnsveggjunum sem fær mig til að hugsa. Þrátt fyrir að það sannarlega ýtir undir eitthvað, kannski bara því að það að breyta um umhverfi neyðir mann til að pæla í hlutum sem maður hafði ekki pælt í áður.
2. Skólinn hér só far
Mig langar að tala aðeins um muninn á skólanum hér og heima.
Augljós munur er sá að hér er meira símat. Klassískt er kannski 25-50% lokapróf, 30-40% heimavinna yfir önnina og 20-40% miðannarpróf (til samanburðar er týpískt í HÍ hjá mér 60-70% lokapróf). Miðannarprófin gilda oft jafnmikið eða meira en lokaprófin (hvort sem þau eru tvö eða eitt). Námið er frekar svipað og heima að því leyti að það eru verkefni ca. 1x í viku í öllum áföngunum, hingað til hefur námið verið nokkuð auðveldara, en ég hugsa að það verði erfiðara þegar öll projectin koma og áfangarnir þróast.
Hvað varðar kennarana, þá bjóst ég kannski við að þeir væru betri hér. Ég myndi aðallega segja að það væri aðeins öðruvísi. Stundum, stundum ekki. Almennt myndi ég þó segja að kennararnir hér hefðu aðeins meiri áhuga á því sem þeir eru að kenna heldur en í HÍ. En virðing mín fyrir HÍ gerir ekkert nema að aukast eftir veru mína hér. Eitt sem vert er að nefna að Bandaríkin eru að einhvejru leyti menntunarmiðja heimsins, og gaman er að segja frá því að einn gestafyrirlesarinn í áfanga um þráðlaus nema-net hafði unnið fyrir DARPA sem áttu stóran part í internetinu og margt fleira. Stendur auðvitað fyrir eitthvað tengt "vörnum", Defense Advanced Research Projects Agency. Það var frekar kúl að vera svona nálægt hlutum sem þessum.
Munurinn sem mér finnst kannski mest hressandi, er að mér finnst vera minni áhersla lögð á teóríu hér og meiri áhersla lögð á praktík. Frösum eins og "this is what you actually need to know" hefur verið varpað fram hér sem ég kannaðist ekki við frá Íslandi. HÍ er frekar teórískur hugsa ég. En það gefur manni samt mjög góða þekkingu á efninu (hugsanlega dýpri en ef maður er bara í praktíkinni) ef maður lærir það þannig...
Þessu skal vitaskuld tekið með nokkrum únsum af salti. T.d. hef ég bara verið hér í rúman mánuð, er farinn að hlakka smá til að byrja í lab-i í áfanganum þráðlaus nema-net (WSN). Þar mun ég læra eitthvað á Zigbee útvörpun skilst mér (halló Kiddi).
3. Myndadump #3
| Gægjugöt!!!! ó já |
| Hi Leon |
| Sjáið þið fánann vinstra megin?! |
| Uppstillingin þegar ég er að vinna. Star Wars kemur alltaf sterkt inn. |
| Orðið aðeins persónulegra hérna með þetta upp á veggnum. |
| Hvað er þetta?! Já, þetta eru kartöflur. Bragðast eins og franskar, gott stöff. Hef pæld mikið í því hvernig þeir búa þetta til... ætli þeir séu með tvö skref af vélum sem bora göt í þetta? |
| IOWA ATHLETES YEAH #17 HARDCORE |
| Já. Ójá. Fyrsta engisprettan sem ég sé! (hef heyrt í ansi mörgum) Hvað það gladdi mig. Ég var að labba og leit niður þegar eitthvað stökk á mig og skoppaði til baka. Þessi litla elska :) |
- Matthías, Iowa City, 09/26/2013

Þú hefur reyndar séð bæði Gullfoss og Geysi, en það hefur kannski litla þýðingu fyrir þig að vita það. þar sem þú manst ekkert eftir Gullfossi og Geysi. Þeir verða enn á sínum stað þegar þú kemur heim:)
ReplyDeleteTakk, það er samt gott að vita. En já, ég hef verið frekar ungur? Síðan var mér alveg sama um allt svona (og fleira) þangað til ég varð kannski 20 ára gamall.
DeleteÞetta með kartöfluna veit ég!
ReplyDeleteÞað er notað sérstakt rifjárn og kartöflunni snúið um 90° milli hvers rifs með járninu.
This comment has been removed by the author.
DeleteEpískt!
Deleteeins og þetta? http://4.bp.blogspot.com/-x_jH8-ihDo0/UdTS5CvQVJI/AAAAAAAABVA/QbyWvZRU32E/s1600/photo.JPG
hversu svalt
Kannski kona ætti að fá sér svona epískt áhald í eldhúsið?
Deleteþó það væri karl
Delete